Frétt
Listería í kjúklingapasta

Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af kjúklingapasta frá fyrirtækinu Preppup. Listería (Listeria monocytogenes) greindist í salatinu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Preppup
- Vöruheiti: Kjúklingapasta
- Framleiðandi: Matarkompaní ehf.
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: L 112 / 25.05.21
- Geymsluskilyrði: 0-4°C
- Dreifing: Nettó, Iceland, Hagkaup, Krambúðin, Kjörbúðin og á vef PreppUp
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila til verslunar eða fyrirtækisins gegn endurgreiðslu. Hægt er að hafa samband í síma 519-9887 eða með tölvupósti [email protected] til að fá frekari upplýsingar.
Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.
Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Markaðurinn7 dagar síðanNýtt vörumeri hjá Nathan: Musgraves Excellence
-
Markaðurinn7 dagar síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði
-
Markaðurinn6 dagar síðanDanól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMichelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga
-
Frétt7 dagar síðanMatvælastofnun varar við Malwa tei vegna aðskotaefnis
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi


