Frétt
Tillaga stjórnvalda um afléttingu innanlandstakmarkana í áföngum – Öllum takmörkunum aflétt innanlands í júní
Heilbrigðisráðuneytið kynnir áætlun um afléttingu innanlandstakmarkana vegna COVID-19 í áföngum með hliðsjón af framgangi bólusetningar. Áætlað er að aflétta megi öllum innanlandstakmörkunum síðari hlutann í júní þegar um 75% þjóðarinnar hafi fengið a.m.k. einn bóluefnaskammt. Áætlunin verður birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og lýkur umsagnarfresti 4. maí nk.
Afléttingaráætlunin er í fjórum skrefum og tekur mið af framgangi bólusetningar. Áætlunin er sett fram með hliðsjón af því hve hratt gengur að bólusetja landsmenn og er jafnframt birt með fyrirvara um mat sóttvarnalæknis á aðstæðum og stöðu faraldursins á hverjum tíma.
Fyrsta skref afléttingar hefur þegar verið tekið með tilslökunum á samkomutakmörkunum og í skólastarfi sem tóku gildi 15. apríl síðastliðinn. Þá voru fjöldatakmörk aukin úr 10 í 20 manns, opnað var fyrir starfsemi sundlauga, líkamsræktarstöðva o.fl. með takmörkunum, hægt var að hefja sviðslistastarf á ný og sitthvað fleira.
Fyrri hluti maí: Fleiri megi koma saman
Áætlað er að snemma í maí verði unnt að stíga annað skref til rýmkunar á innanlandstakmörkunum þegar a.m.k. 35% landsmanna hafa fengið bólusetningu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hækka fjöldatakmarkanir og er miðað við mörk á bilinu 20 – 200 manns. Einnig er gert ráð fyrir rýmri undanþágu frá nálægðarreglu og fjöldatakmörkun fyrir tiltekna starfsemi.
Síðari hluti maí: Nálægðarmörk verða 1 metri og fjöldatakmörk rýmkuð enn frekar
Síðari hlutann í maí er gert ráð fyrir að am.k. 50% landsmanna hafi fengið bólusetningu og að bólusetning einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma sé komin vel á veg. Þá verði unnt að rýmka fjöldatakmarkanir til muna, sem verði einhvers staðar á bilinu 100 til 1.000 manns. Samhliða verði nálægðarmörk færð úr tveimur metrum í einn.
Síðari hluti júní: Öllum takmörkunum aflétt innanlands
Gert er ráð fyrir að aflétta megi öllum takmörkunum innanlands seinni hlutann í júní. Á þeim tíma er gert ráð fyrir að búið verði að bólusetja um 75% landsmanna að minnsta kosti einu sinni.
Forsendur afléttingaráætlunarinnar eru annars vegar fyrirliggjandi áætlanir um afhendingar bóluefna ásamt markmiðum samninga um afhendingu og hins vegar bólusetningaráætlun embættis landlæknis.
Afléttingaráætlun í samráðsgátt stjórnvalda
Bólusetningaráætlun, staða samninga og afhendingaráætlun bóluefna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn1 dagur síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




