Frétt
Glerbrot í pestó
Matvælastofnun varar við neyslu á rauðu pestói frá Himneskri hollustu vegna glerbrots sem fannst í einni krukku. Innflytjandinn, Aðföng ehf., hefur innkallað lotur merktar með best fyrir dagsetningum í október 2022, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Einungis er verðið að innkalla neðangreindar lotur:
Vörumerki: Himneskt
Vöruheiti: Lífrænt rautt pestó
Strikamerki: 5690350050692
Nettómagn: 130g
Best fyrir dagsetningar: Allar í október 2022
Framleiðandi: La Dispensa di Campagna Srl, Toskana
Framleiðsluland: Ítalía
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaupa um land allt
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 og á netfanginu gaedastjori hjá adfong.is.
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn4 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt3 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt KEA skyr sækir innblástur í einn þekktasta eftirrétt heims
-
Markaðurinn1 dagur síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu



