Viðtöl, örfréttir & frumraun
Velta Spaðans rúmlega 31 milljón eftir skatt fyrsta mánuðinn
Þórarinn Ævarsson bakari og stofnandi Spaðans, segir veltuna hafa verið rúmlega 31 milljón eftir skatt fyrsta mánuðinn í rekstri fyrirtækisins. Þórarinn opnaði pítsustaðinn Spaðann 8. maí sl. í nýju atvinnuhúsnæði á Dalvegi 32b í Kópavogi.
„Ég er sáttur við þessa byrjun í ljósi kórónuveirunnar, mikilla viðbragða keppinauta og rjómablíðu, sem almennt er ekki góð fyrir þennan rekstur,“
segir Þórarinn í samtali við ViðskiptaMoggann í gær.
Þórarinn segir laun hafa verið undir þriðjungi af kostnaði
„Launaliðurinn, sem er reyndar ekki mjög marktækur svona í upphafi meðan verið er að þjálfa fólkið, var rétt undir 30% af kostnaði, sem er verulega gott. Þegar breytilegur kostnaður, sem er laun og hráefni, eru tekin saman er sá liður um 70%, sem er vel ásættanlegt.
Spaðinn er enda fyrsta mánuð í rekstri í smá plús. Það er mikið gleðiefni og augljóslega ýtir það undir kröfur í þá veru að fjölga útibúum sem fyrst, enda er ljóst að markaðurinn kann mjög vel að meta það sem Spaðinn hefur upp á að bjóða,“
segir Þórarinn.
Nánari umfjöllun er að finna í ViðskiptaMogganum í gær.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt1 dagur síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Frétt3 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Markaðurinn5 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanBBQ-hátíð verður haldin í fyrsta sinn á Íslandi núna um helgina



