Frétt
37% ætla að gæða sér á skötu í dag
Lítið lát er á vinsældum skötunnar en rúmur þriðjungur landsmanna heldur á vit hennar í dag. Hefur hlutfall þeirra sem halda í skötuhefðina haldist um þetta bil frá því að mælingar MMR á jólahefðum landsmanna hófust árið 2011.
Alls voru 37% sem sögðust ætla að borða skötu á Þorláksmessudag þetta árið, 2 prósentustigum fleiri en í fyrra.
Munur eftir lýðfræðihópum
Skatan reyndist líkt og fyrri ár vinsælli hjá körlum heldur en konum en 44% karla sögðust ætla að gæða sér á hinu kæsta ljúfmeti á Þorláksmessu þetta árið, samanborið við 30% kvenna. Þá höfðaði skatan líkt og áður einnig meira til eldri kynslóða heldur en þeirra yngri en 58% svarenda 68 ára og eldri sögðust ætla að fara í skötu í ár, samanborið við einungis 21% þeirra 18-29 ára.
Þá virðist sem að skötuhefðin haldi áfram að vera ríkari á landsbyggðinni heldur en á höfuðborgarsvæðinu en 46% svarenda af landsbyggðinni kváðust ætla að borða skötu á Þorláksmessu, samanborið við 32% þeirra af höfuðborgarsvæðinu.
Mynd: úr safni
-
Keppni5 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn5 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt6 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn2 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Markaðurinn2 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni



