Frétt
Umdeildur villibráðaréttur hjá Noma
Síðan um miðjan október hefur René Redzepi eigandi Noma boðið upp á villibráð. René býður upp á frumlega villibráðarétti og er einn réttur sem hefur verið skrifað talsvert um á samfélagsmiðlum, en það er andaheili.
Fólk skiptist í tvo hópa um álit á réttinum, annaðhvort stórhneykslað eða halda varla vatni yfir andaheilanum.
Andaheilinn er soðinn í smjöri og kryddi og borinn fram í andahöfðinu.
Að auki á matseðlinum er hreindýratunga, elg lærvöðvi, andaleggir, villt ber, hnetur, sveppi og margt fleira.
Það gæti verið að brasilíski kokkurinn Alex Atala hafi veitt René innblástur við gerð á villibráðamatseðlinum á Noma, en Alex afhausaði kjúkling á MAD matreiðsluráðstefnunni í Kaupmannahöfn, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi:
Þessi margrétta villibráðamatseðill á Noma stendur yfir frá 15. október til 21. desember 2019 og kostar rúmlega 45 þúsund á manninn.
Myndir: Instagram / René Redzepi
-
Markaðurinn3 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni3 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Markaðurinn3 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Markaðurinn2 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
-
Bocuse d´Or5 klukkustundir síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Vín, drykkir og keppni21 klukkustund síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna





