Frétt
Ríkið kaupir matvæli fyrir um 3 milljarða króna á ári – Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila
Starfshópur um innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila hefur lokið störfum og afhent Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skýrsluna.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að ríkið kaupir matvæli fyrir um 3 milljarða króna á ári og ljóst er að stórkaupandi eins og ríkið getur haft víðtæk áhrif á eftirspurn matvæla og eflingu nýsköpunar. Það er vilji stjórnvalda að ganga á undan með góðu fordæmi og stuðla að því að innkaup ríkisaðila á matvælum byggi á raunhæfum úrbótum í samvinnu við hagaðila og verði fyrirmynd annarra opinberra aðila eins og sveitarfélaga.
Stefnan tekur mið af því að opinber innkaup matvæla fyrir ríkisaðila stuðli að jákvæðum umhverfisáhrifum við framleiðslu, flutninga og umsýslu matvæla. Lögð er áhersla á að máltíðir í mötuneytum séu í samræmi við ráðleggingar embættis landlæknis um hollt mataræði og að neytendur séu upplýstir um uppruna og næringargildi matarins. Í stefnunni eru þrjú meginmarkmið og aðgerðir til að ná þeim.
Sjá einnig: Innkaupastefna matvæla fyrir ríkisaðila
Í stefnunni er m.a. fjallað um umhverfisáhrif, matarsóun, matvælamerkingar, rekjanleika, reiknilíkan fyrir kolefnisspor, næringarútreikninga, innkaupaferla, eftirfylgni, fræðslu og viðurkenningu á góðum starfsháttum.
Sú stefna að hækkandi hlutfall matvæla uppfylli vistvæn skilyrði í opinberum innkaupum verður aðeins innleidd yfir nokkurra ára tímabil með sífelldu samráði við fulltrúa hagaðila og með aðkomu ráðuneyta eins og fjármála- og efnahagsráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, umhverfis- og auðlindaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Markmiðið er að framleiðendur, birgjar/bjóðendur og innkaupastjórar matvæla hafi tíma til að aðlagast eftirspurn og kröfum sem settar eru fram í innkaupastefnunni. Það er ekki óeðlilegt að innkaupastefna matvæla sé í sífelldri mótun vegna ytri aðstæðna, tæknivæðingar og markaðsumhverfis.
Drög að innkaupastefnunni lágu fyrir í samráðsgátt í 14 daga og er búið að taka tillit til þeirra umsagna sem bárust eftir því sem tilefni var til.
Mynd: stjornarradid.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðan
Slippurinn í Vestmannaeyjum tekur sitt síðasta tímabil 2025 – Gísli Matt: ástæða lokunarinnar er sú að við trúum því að allt gott taki enda
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan
La Barceloneta er fyrsti veitingastaðurinn á Íslandi sem hlýtur ICEX viðurkenningu
-
Uppskriftir4 dagar síðan
Vinsælustu uppskriftirnar árið 2024
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Þessi réttir stóðu upp úr hjá Michelin eftirlitsmönnum á árinu 2024
-
Frétt3 dagar síðan
Mest lesnu fréttir ársins 2024 á Veitingageirinn.is
-
Markaðurinn10 klukkustundir síðan
Myndaveisla – Franski bakarameistarinn Remy Corbet Daniel Jean kynnti aldagamlar aðferðir við súrdeigs- og sætabrauðsbakstur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Fálkahúsið og Kokka verðlaunuð fyrir bestu jólaskreytingarnar á árinu sem var að líða
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Ertu frumkvöðull í íslenskri matvælaframleiðslu? 20 milljónir í boði fyrir matarfrumkvöðla