Food & fun
Sumac – Food and Fun 2019
Ólafur Sveinn Guðmundsson matreiðslumeistari heimsækir nokkra veitingastaði sem taka þátt í Food and Fun hátíðinni næstu daga og féllst á að leyfa lesendum Veitingageirans að njóta þess með sér.
Sumac
Sumac á Laugaveginum er talinn vera meðal bestu veitingastaða landsins. Á Food and Fun hátíðinni í ár komu gestakokkarnir frá Washington DC, þeir Gerald Addison og Chris Morgan en þeir og eiga og reka veitingastaðina Compass Rose og Maydan sem njóta mikilla vinsælda og hafa hlotið fjölda viðurkenninga.
- Gerald Addison
- Chris Morgan
Matur þeirra félaga ber sterkan keim frá miðausturlöndum, löndum eins og Ísrael, Jemen, Líbíu, Líbanon og Marakó. Þeir ferðast mikið um þessi lönd og læra matargerð sína af heimamönnum.
Maturinn þeirra er frábær – þeir blanda saman á hárfínan hátt mismunandi straumum og stefnum og úr verður framandi og skemmtileg matarupplifun. Það er leikur að framandi kryddum alla leið enda hafa þeir verið að gera það verulega gott í USA.
Eins og venjulega þá erfitt að gera upp á milli en sá réttur sem skaraði framúr að mínu mati var grillaður steinbítur með tahini, sítrónu og chermola með óviðjafnanlegu Fassoulina salati. Þá vill ég alls ekki lasta neinn en steinbíturinn var algjört sælgæti.
Sérstaða Sumac er að eldhúsið er opið og því gaman að hægt er að fylgjast með matareiðslunni yfir barborðið en mest af matnum er grillaður yfir opnum eldi.
Stemningin er létt og notaleg og framúrskarandi þjónusta.
Það er meira eða minna fullt alla helgina en þið sem hafið áhuga á að reyna að ná ykkur í borð að þá er það bara að gera það strax.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu




























