Freisting
Því ekki fiskmarkaði, rétt eins og grænmetismarkaði og bændamarkaði?

Fiskmarkaðir erlendis eru vinsælir
Ísland er þekkt fyrir frábæran fisk og góð fiskimið, en einhverra hluta vegna tíðkast ekki hér á landi að almenningur geti keypt ferskan fisk á hafnarbakkanum eða á fiskmarkaði. Þótt margir hafi sýnt hugmyndinni um fiskmarkað áhuga, hefur henni ekki verið fylgt eftir í framkvæmd hingað til.
Nú lítur út fyrir að hreyfing sé að komast á málið bæði í Reykjavík og víðar, og að þess sé ekki lagt að bíða að gestir og gangandi geti nálgast ferskan fisk á þennan lifandi og skemmtilega hátt.
Þær Þóra Valsdóttir, matvælafræðingur hjá Matís ohf og Brynhildur Pálsdóttir, matarhönnuður hjá Listaháskóla Íslands, kynna áhugaverða samantekt um möguleika fiskmarkaða á Íslandi á fundi félagsins Matur saga menning, fimmtudaginn 25. mars kl 17.00 í húsnæði Reykjavíkur Akademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Á undan fundinum, þ.e. frá kl 16.30-17.00 verður aðalfundur félagsins haldinn samkvæmt áður boðaðri dagskrá, segir í fréttatilkynningunni frá félaginu Matur saga menning.
-
Keppni19 klukkustundir síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni1 dagur síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni3 dagar síðanGull og silfur til Íslands á Norðurlandamótinu í matreiðslu – Myndir
-
Frétt4 dagar síðanSvangur þjófur braust inn í Almars bakarí í Hveragerði
-
Keppni17 klukkustundir síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Keppni17 klukkustundir síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanPáskatilboð sem þú vilt ekki missa af
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLokahóf Kokks ársins 2026





