Viðtöl, örfréttir & frumraun
Rúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt

Frá vinstri: Örn Erlingsson matreiðslumeistari, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og María Dóróthea Jensdóttir við brauðtertuna á Menningarnótt.
Blásið var til brauðtertuveislu á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið bauð gestum og gangandi til veislunnar þar sem boðið var upp á rúmlega sex metra langa brauðtertu, líklega þá lengstu sem gerð hefur verið hér á landi.

Örn Erlingsson og María Dóróthea Jensdóttir voru hress við undirbúning brauðtertunnar fyrir Menningarnótt.
Veislan hófst klukkan 15 í alrými ráðuneytisins á fyrstu hæð í Reykjastræti 8, á móti Hörpu. Auk brauðtertunnar var boðið upp á tónlist og sjónlist.
Örn Erlingsson matreiðslumeistari í Landsbankanum og María Dóróthea Jensdóttir sáu um allan undirbúning og gerð brauðtertunnar.
„Við vorum í tvo daga við undirbúninginn þar til brauðtertan var fullgerð.
Við María sáum um þetta frá A til Ö. Í tertuna fóru 13 kíló af majónesi, rúmlega 500 egg og meira en 20 kíló af skinku,“
sagði Örn í samtali við Veitingageirann.is.
Hann sagði Maríu eiga mestan heiðurinn af skreytingunum og lýsti henni sem einstaklega hæfileikaríkri.
Brauðtertan vakti mikla lukku meðal gesta en úr henni fengust hátt í eitt þúsund matarskammtar. Allt kláraðist á aðeins einni klukkustund.
Myndir: Úr einkasafni og birtar með leyfi.
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





