Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr bar opnar á Hótel Keflavík
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á veitingadeild hjá Hótel Keflavík, nýtt eldhús með nýjum græjum og nýjan bar sem hefur fengið heitið KEF bar.
Barinn opnaði um mánaðarmótin s.l. á Ljósanæturhelgina.
„Þetta átti að vera róleg opnun en það fylltist allt og fólk gaf sér langan tíma til að njóta. Það var gaman“.
sagði Steinþór Jónsson hótelstjóri á Hótel Keflavík í samtali við Víkurfréttir.
Nýr yfirbarþjónn frá Englandi, Ritchie Suffling, vakti athygli fyrir frumlega drykki, skemmtilegan fróðleik og fagmennsku. Keflavíkingurinn, Gunni Palli frá Port9, kom einnig í heimsókn og tók vel á móti heimafólki.
Með fylgir vínseðillinn frá KEF bar:
Einstækt tækifæri í Keflavík
Nú á dögunum auglýsti Hótel Keflavík eftir öflugum rekstraraðila og/eða vönum matreiðslumanni og þjónum, en hægt er að nálgast nánari upplýsingar með því að smella hér.
Myndir: facebook / Hótel Keflavík
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Er þorrablót í vændum ?
-
Starfsmannavelta6 dagar síðan
Michelin veitingastaðnum Locanda Locatelli lokað eftir 23 ára starfsemi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Monkeys PopUp á Hótel Vesturlandi – Ekki missa af þessum viðburði
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Nýtt útlit á Tanqueray nr.10
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Allt fyrir Þorrablótin
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Ekta heimilismatur ofl. á góðu tilboði
-
Frétt2 dagar síðan
Fallist á allar kröfur MATVÍS í dómsmáli gegn Flame
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Grunnnámskeið í kokteilagerð – Langar þig að læra að búa til ljúffenga og girnilega kokteila?