Frétt
LABAK fagnar aldarafmæli fullveldis Íslands með því að hanna sérstaka fullveldisköku
Landssamband bakarameistara, LABAK, fagnar aldarafmæli fullveldis Íslands með því að hanna sérstaka fullveldisköku sem verður til sölu í bakaríum félagsmanna víða um land. Landslið bakara hannaði kökuna í samvinnu við stjórn LABAK, en um er að ræða lagköku með rabarbarasultu á milli laga en er færð í hátíðarbúning með því að bæta við rjóma á milli tveggja efstu laganna og ofan á henni er hvítt súkkulaði. Fullveldiskakan byggir á vinsælum uppskriftum frá 1918.
Afmælisnefnd fullveldis Íslands í samstarfi við Hrafnistu hefur boðið öllum Íslendingum fæddum 1918 og fyrr til hátíðarsamkomu á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 19. júlí þar sem meðal annars verður boðið upp á fullveldiskökuna. Í frétt afmælisnefndar segir að um sé að ræða 64 einstaklinga sem hafi fengið boð í veisluna ásamt gesti og er þetta er í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar sem öllum Íslendingum 100 ára og eldri er boðið saman til sérstakrar veislu. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun heiðra fullveldiskynslóðina með heimsókn af þessu tilefni.
Á sama tíma hefst sala á kökunni í bakaríum félagsmanna LABAK og verður hún til sölu fram yfir hápunkt afmælisársins á fullveldisdaginn 1. desember.
Myndir: labak.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanArnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
-
Markaðurinn4 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanJapanskt gin sækir fram þrátt fyrir samdrátt í áfengissölu
-
Frétt2 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt





