Frétt
Kokkurinn þakkaði Messi fyrir leikinn

Aðstoðarmaður Hinriks er meistarinn sjálfur, Kirill Dom Ter-Martirosov yfirmatreiðslumaður á Fiskmarkaðinum
Íslenska landsliðið í fótbolta er með kokk á vegum KSÍ sem sér um að elda ofan í strákana á HM í Rússlandi. Kokkurinn, Hinrik Ingi Guðbjargarson, beið hins vegar ekkert í eldhúsinu á meðan Ísland spilaði við Argentínu heldur var mættur inn á völlinn og tók í hendina á Messi eftir leik.
Strákarnir í Sumarmessunni á Stöð 2 Sport fjölluðu um þetta stórskemmtilega atvik og efaðist Hjörvar Hafliðason um að nokkuð annað lið í heiminum leyfði kokkinum að hanga á hliðarlínunni með liðinu.
Myndir: úr einkasafni / Hinrik Ingi
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanHeilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands
-
Frétt6 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerskt íslenskt kínakál komið á markað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanHelliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu
-
Markaðurinn9 klukkustundir síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur



