Frétt
Svona lítur maturinn út hjá Krauma

Í aðalbyggingu Krauma er veitingastaður með fullbúnu eldhúsi sem rúmar 70 manns í sæti og 60 á palli utandyra þegar veður leyfir.
Skammt norðan Deildartunguhvers standa Krauma – náttúrulaugar. Náttúrulaugarnar innihalda hreint og tært vatn, beint úr Deildartunguhver sem kælt er með vatni undan öxlum Oks, minnsta jökuls Íslands. Laugarnar eru sex talsins, fimm heitar og ein köld. Engum sótthreinsandi efnum er bætt í vatnið, heldur er hreinleiki þess tryggður með mjög miklu vatnsrennsli í laugarnar.
Til að hámarka slökunina stendur gestum til boða að dvelja í hvíldarherbergi. Í herberginu er að finna þægilega legubekki þar sem gestir slaka á við ljúfa tónlist og snark frá arineldi. Krauma bíður upp á tvö gufuböð í aðskildum byggingum og útisturtum. Gufan er fengin með því að úða hveravatni inn í rýmin. Í gufuböðunum er notaðar hágæða ilmlúr til að hámarka upplifun gesta.
Í aðalbyggingu er veitingastaður með fullbúnu eldhúsi sem rúmar 70 manns í sæti og 60 á palli utandyra þegar veður leyfir. Yfirmatreiðslumaður Krauma er Björn Ágúst Hansson.

Gulræturnar frá Víðigerði með perlubyggi, gulrótargeli, gulrótar mauki, gulrótar froðu, hnetu mulning og brenndum og hægelduðum lauk
Á veitingastaðnum er lögð áhersla á ferskt hráefni úr héraði, t.d tómatar frá Víðigerði, Salat, jarðaber og kryddjurtir frá Sólbyrgi, geitin frá Háfelli, Ísinn frá Laufey á Brekkukoti, laxinn frá Eðalfisk, Nautahamborgarnir frá Mýranaut.

Laxaplatti.
Dillgrafinn lax, greni reyktur lax, hægeldaður í rauðrófusafa með heimagerðum ricotta osti, sýrðum perlulauki og rúgbrauðs mulningi.

Háafells platti.
Blóðbergs grafin geit, rósmarín reykt geit, geita pylsa, geita feta og sýrðum perlulauki.

Sólbyrgja Salat.
Salat frá Sólbyrgi, Hægeldaðir kirsuberja tómatar, dill sýrðar gúrkur, papriku, sólblómafræum og heimagerðum ricottaosti.

Krauma Hamborgari.
Hamborgari frá Mýaranaut, rauðlaukssulta, portobello sveppum, rucola salati, Havarti ost og parmaskinku.
Myndir: facebook / Krauma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanEigandi Sjávarsetursins gagnrýnir harðlega meintan mismun Suðurnesjabæjar á fyrirtækjum – Uppfært
-
Markaðurinn4 dagar síðanÁsbjörn Ólafs flytur í glæsilegt húsnæði og blæs til umfangsmikillar lagersölu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMyndaveisla frá hátíðarkvöldverði Klúbbs Matreiðslumeistara 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNý matreiðslustefna á Sheraton – Mr. Bronck opnar í mars
-
Frétt1 dagur síðanTilkynning frá Suðurnesjabæ vegna umfjöllunar um Sjávarsetrið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanStóra veislusýningin í Múlabergi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSjónvarpskokkurinn James Martin tapar í vörumerkjadeilu
-
Frétt4 dagar síðanSkráning opin í Barlady 2026 – Tækifæri fyrir framúrskarandi barþjóna











