Frétt
Veirusýking í íslenskri tómatrækt – Er ekki skaðleg fólki eða dýrum
Nú í haust greindust tveir plöntusjúkdómar í tómatrækt hérlendis. Um er að ræða veiruna Pepino Mosaic Virus (PepMV) og spóluhnýðissýkingu (Potato Spindle Tuber Viroid – PSTVd). Niðurstöður rannsóknar Matvælastofnunar gefa til kynna að veirusmitið af völdum PepMV eigi sér sameiginlegan uppruna og sé útbreitt meðal tómatræktenda hérlendis.
Sjúkdómarnir eru ekki skaðlegir fólki en geta valdið miklum afföllum í tómatrækt. Matvælastofnun veit ekki til þess að veiran eða veirungurinn hafi áður náð fótfestu í garðyrkju hérlendis.
Við rannsókn voru tekin 22 sýni til hraðprófunar, af þeim voru 12 jákvæð fyrir PepMV veirunni. Ekki var skimað fyrir spóluhnýðissýkingu í hraðprófun. Einnig voru 16 ný sýni frá sömu ræktendum send til frekari rannsóknar, af þeim voru níu jákvæð fyrir PepMV og eitt jákvætt fyrir spóluhnýðissýkingu. Sex ræktendur höfðu þegar tæmt hús þegar sýnataka fór fram og ekki fengust sýni frá þeim. Spóluhnýðissýking greindist hjá tveimur til viðbótar síðasta haust við sýnatökur ræktenda.
Niðurstöður rannsóknar sýna að sýkingarnar eru bundnar við Suðurlandsundirlendið en ekki er hægt að útiloka frekari útbreiðslu í öðrum landshlutum.
Í kjölfar sýkinga voru smitvarnir auknar og settar takmarkanir á samgangi milli ræktunarstaða. Matvælastofnun vekur einnig athygli á því að innfluttir tómatar geta borið með sér smit. Til þess að stemma stigu við frekari útbreiðslu mun Matvælastofnun vinna að auknum smitvörnum á býlum sem greinst hafa með ofangreinda sjúkdóma.
Í fréttatilkynningu Matvælastofnunar segir að veiran og veirungurinn eru ekki skaðleg fólki eða dýrum. Spóluhnýðissýking getur hins vegar borist í kartöflur með tilheyrandi afföllum. Matvælastofnun beinir því til kartöfluræktenda að gæta að mögulegu krosssmiti frá einstaklingum og aðföngum sem borið gætu smit úr tómatrækt.
Nánari upplýsingar um plöntusjúkdómana er að finna í ítarefninu hér að neðan.
Ítarefni
- Leiðbeiningar Matvælastofnunar um smitvarnir fyrir ræktendur garðyrkjuafurða
- Veirusmit í tómatrækt – frétt Matvælastofnunar frá 03.11.17
- Vírus í tómatrækt – frétt Matvælastofnunar frá 02.10.17
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn2 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Frétt17 klukkustundir síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni22 klukkustundir síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins




