Freisting
Myndasafn: Nýr veitingastaður í Reykjavík

Föstudaginn 13. mars var formleg opnun á Dill restaurant en hann er staðsettur í Norræna húsinu, forsvarsmenn eru Ólafur Örn Ólafsson formaður Vínþjónasamtaka Ísland og fyrrverandi yfirþjónn á Vox og Gunnar Karl Gíslasson fyrrverandi yfirkokkur á Vox og meðlimur í landsliði matreiðslumanna.
Gunnar hefur verið fremstur í flokki þeirra sem hafað unnið út frá nýnorrænni matargerð og verður það þema veitingastaðarins.
Í hádeginu verður létt yfir og þekktir norrænir réttir sem falla undir hugtakið Husmandskost í boði, en í nútíma útfærslu matreiðslumannsins ( má þar nefna biximat, plokkfiskur, kjötbollur of lambaskanka ) einnig verður súpa og salöt í boði.
Á kvöldin verður skipt um gír og nýnorræna eldhúsið í allri sinni dýrð ræður ríkjum í margrétta matseðlum.
Ekki skal gleyma að segja frá því að útsýni á veitingastaðnum er stórfenglegt út úr skarkalanum en þó það nálægt að hægt er að fylgjast með honum.
Er það okkar von á Freisting.is að þessi hugmynd þeirra félaga gangi upp því hún er kærkomin viðbót í flóru veitingahúsa hér í borginni.
Smellið hér til að skoða myndir frá opnuninni
Formlega opnanir / Dill opnun
-
Keppni5 dagar síðanFremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Keppni2 dagar síðanManuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd
-
Markaðurinn6 dagar síðanOlifa og Danól hefja samstarf um ítölsk gæðahráefni fyrir fageldhús
-
Markaðurinn7 dagar síðanFastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa
-
Markaðurinn2 dagar síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera
-
Frétt2 dagar síðanSkreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó



