Freisting
Hinrik Carl á leið í heimsreisu
Hinrik Carl matreiðslumaður og vinur hans Steingrímur Kristjánsson fara í heimsreisu í hálft ár og hefst hún 15. september n.k.
Hinrik eða Hinni eins og hann er kallaður er búinn að vera vinna í allt sumar á Hótel Varmahlíð til að safna sér fyrir ferðina. Aðspurður um hvernig sumarið hefur verið á Hótel Varmahlíð, „það er búið að vera virkilega gaman hér í Varmahlíð, en ég hef verið að týna hundasúrur, sveppi, krækiber og bláber omfl., þannig að gestirnir hafa verið að fá fjölmargt beint úr náttúrunni hér úr sveit og ekki má gleyma Hólableikjunni frá Hólum, en þar er ég að fá bleikjuna spriklandi til mín á hverjum degi, sagði Hinni með bros á vör.
Hvað kostar svona heimsreisa?
Áætlaður kostnaður er rúmar 1,2 milljónir króna á mann, en það er fyrir utan hluta af farmiðakostnaði, en við erum þegar búnir að kaupa ferðirnar til Frakklands og Nepal.
Þau lönd sem þeir koma til með að ferðast til er: Frakkland, Nepal, landleiðina niður til Thailands( þ.e.a.s. í gegnum kína og niður til Vietnam og áfram þar niður til Thailands), Ástralía, Nýja Sjáland, Hawaii, San Fransico, New York og Reykjavík, en áætlaður ferðatími eins og aður sagt um 6 mánuði.
Þeir félagar byrja á því að vinna á vínekru í frakklandi sem ber heitið Pujol sem er staðsett við landamærin Spán og Frakkland og var það víndrottningin Dominique sem aðstoðaði drengjunum við að fá starf þar.
Steingrímur Kristjánsson hefur starfað í eigin rekstri í 9 ár við filmuísetningar í bíla ofl. og ætlar að venda kvæði sínu í kross og fara læra leikskólakennarann þegar heim er komið eftir hálft ár.
Til gamans má geta að þegar þeir félagar Hinni og Steingrímur verða í Nepal 5. nóvember, þá ætla þeir að skella sér í teygjustökk og fara í frjálsu falli niður um 160 metra ( svipuð hæð og tvær Hallgrímskirkjur) og þaðan fara þeir í 15 daga River Rafting niður Karnali ánna, en hún er talin vera sú erfiðasta og lengsta rafting á í heimi.
Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með, er bent á bloggsíðu þeirra: www.teamgorgeir.bloggar.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðan
Áætla um 100 matreiðslumenn og 50 framreiðslumenn að störfum í hátíðarkvöldverði KM
-
Markaðurinn7 dagar síðan
Myndaveisla – Franski bakarameistarinn Remy Corbet Daniel Jean kynnti aldagamlar aðferðir við súrdeigs- og sætabrauðsbakstur
-
Starfsmannavelta5 dagar síðan
Michelin veitingastaðnum Locanda Locatelli lokað eftir 23 ára starfsemi
-
Markaðurinn21 klukkustund síðan
Er þorrablót í vændum ?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Monkeys PopUp á Hótel Vesturlandi – Ekki missa af þessum viðburði
-
Markaðurinn6 dagar síðan
Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Vestfirði
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Nýtt útlit á Tanqueray nr.10
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Allt fyrir Þorrablótin