Freisting
Bláa Lónið framleiðir orkute og nýr og glæsilegur 250 manna veislu- og veitingasalur
Bláa Lónið hefur sett á markaðinn markaðinn orkute en um er að ræða jurtate sem veitir aukna orku, jafnvægi og vellíðan.
Jurtirnar í teinu eru sérvaldar úr hreinni íslenskri náttúru. Teið er hægt að nálgast í verslunum Bláa Lónsins eða í netverslun fyrirtækisins.
Þetta er í fyrsta sinn sem Bláa Lónið framleiðir neysluvöru, en Bláa Lónið hefur aðallega verið í framleiðslu á kremum, hár- og líkamssápum ásamt nuddolíum ofl.
Nýr og glæsilegur 250 manna veislu- og veitingasalur
Það ættu margir hverjir vita af stækkun Bláa Lónsins, en framkvæmdirnar felast í að búnings- og baðaðstaða verði stækkuð og endurhönnuð.
Breytingar verða jafnframt gerðar á núverandi veitingasal og nýr og glæsilegur 250 manna veislu- og veitingasalur tekinn í notkun. Úrval veitinga verður aukið og áhersla lögð á að mæta mismunandi þörfum gesta hvað varðar veitingar. Með breytingum mun aukið úrval veitinga býða gesta sem hafa skemmri tíma auk þess sem gestum sem hafa rýmri tíma mun standa til boða að njóta veitinga í nýjum veitingasal. Nýi veitingasalurinn mun einnig nýtast fyrir viðburði t.d. árshátíðir og annan mannfagnað. Auk viðburða sem tengjast ráðstefnu- og hvatahópum.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel20 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Markaðurinn7 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt


