Freisting
Sjallanum á Ísafirði breytt í verslun

Sjálfstæðishúsið, sem gegnt hefur hlutverki skemmtistaðs Ísfirðinga og nærsveitunga svo lengi sem elstu menn muna, en þeir muna nú ekki neitt eins og séra Baldur í Vatnsfirði sagði, hefur skipt um hlutverk og mun í framtíðinni hýsa verslun Þrists.
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í húsinu undanfarið enda eru innréttingar og skipulag skemmtistaðar ekki hentugar fyrir verslunarrekstur. Gólfið undir dansgólfinu verður tekið niður í götuhæð að mestu, nýir gluggar settir í framhlið hússins sem og ný hurð. Ekki er ákveðið hvenær verslunin flytur en það verður á næstu mánuðum.
Þristur verður áfram með verslun í húsnæði vélsmiðju sinnar. Þá hefur Þristur einnig sent inn erindi til bæjaryfirvalda þess efnis að gangstétt fyrir framan húsið verði endurgerð þar sem ástand hennar sé ekki viðunandi.
Greint frá á BB.is
-
Frétt5 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni6 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt21 klukkustund síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or7 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun24 klukkustundir síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina





