Smári Valtýr Sæbjörnsson
Fóru í „stangveiði“ fyrir utan Kjötkompaníið í grenjandi rigningu
Þeir voru hressir strákarnir hjá Kjötkompaníinu þrátt fyrir hryssingslegt veður sem var nú í vikunni og virtust lítið láta rok og rigningu slá sig út af laginu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum:
Skrunið niður til að horfa á myndband
Fagmennska í fyrirrúmi

(F.v.) Kristján Hallur Leifsson kjötiðnaðarmeistari, Örn Svarfdal matreiðslumeistari, Aðalsteinn Arnar Jóhannesson framreiðslumaður og vínþjónn (sommelier), Sigurður B. Sæmundsson kjötiðnaðarmeistari, Sveinbjörn Ingi Þorkelsson matreiðslumaður (bráðum meistari), Jón Örn Stefánsson matreiðslumeistari og eigandi.
Það má með sanni segja að það er fagmennska sem ræður ríkjum hjá Kjötkompaníinu, en hjá fyrirtækinu starfa matreiðslumeistarar, kjötiðnaðarmeistarar, matreiðslumenn og vínþjónn.
Kjötkompaní ehf. var stofnað í september árið 2009, við Dalshraun 13 í Hafnarfirði. Eigandi Kjötkompaní er Jón Örn Stefánsson matreiðslumeistari.
Kjötkompaní hefur komið sér hægt og rólega fyrir í veislubransanum, en fréttaritari hefur í gegnum tíðina spurt fólk hvernig þeim líkar maturinn sem pantað hefur veislu frá þeim og öll skiptin hafa þeir fengið toppeinkunn.
- Skyrmús með ástaraldin
- Risarækja
- Miniborgari með nautalund
- Kjúklinga burrito
- Heitreyktur lax
- Heitreykt önd
Veislumatseðlana er hægt að skoða með því að smella hér, sem eru virkilega vel settir upp, flottar og girnilegar myndir af veisluréttunum en boðið er upp á smárétti, tilbúnar veislur, jólahlaðborð, fermingaveislur svo fátt eitt sé nefnt.
Nautalund Wellington frá Kjötkompaníinu hefur slegið rækilega í gegn og um hver jól og áramót þarf að panta með góðum fyrirvara til að tryggja að hafa þessa ómissandi steik yfir hátíðirnar.
Í meðfylgjandi myndbandi sýna fagmennirnir hjá Kjötkompaníinu hvernig á að elda Wellington:
Myndir: Aðsendar og frá kjotkompani.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Markaðurinn1 dagur síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Markaðurinn5 dagar síðanSparaðu með júlítilboðum Nathan
-
Markaðurinn4 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn2 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt












