Vertu memm

Markaðurinn

VEGA með nýjan samstarfsaðila á Íslandi

Birting:

þann

Þýski aðilinn VEGA hefur hafið samstarf við Bender ehf.

Logo - Vega á Íslandi - 184x184Þýski aðilinn VEGA hefur hafið samstarf við Bender ehf. varðandi þjónustu og sölu á vörum VEGA á Íslandi. Bender ehf. er meira þekkt fyrir að vera með AJ-vörulistann og Supersellers á Íslandi og hafa því verið að þjónusta íslenskan markað í all nokkurn tíma.

Jón Bender, eigandi Bender ehf.,  segir að VEGA hafi gríðarlega fjölbreytta línu til handa hótelum, veitingahúsum og kaffihúsum, allt frá fatnaði, borðbúnaði og skreytingum á borð yfir í húsgögn, rúm og rúmfatnað sem og smærri raftæki. VEGA er þýskt fyrirtæki sem er í eigu Erwin Müller group og hefur sérhæft sig í þjónustu við hótel og matvælageirann í um 30 ár og er í dag með um 40.000 vörunúmer á lager hjá sér. Þeir geti því afgreitt pantanir hratt til Íslands frá miðlægum lagerMeð þessum hætti er hægt að halda verðum í góðu hófi án þess að slaka á þýskum gæðastöðlum. VEGA ábyrgist að í leirtaui og borðbúnaði sé hægt að kaupa vöru inn í settið í allt að 10 ár frá kaupum.

Með því sé viðskiptavinum tryggt að varan sem keypt er verði ekki dottin út úr sölu skömmu eftir að hafa endurnýjað borðbúnað eða leirtau. Allan borðbúnað og fatnað er hægt að fá með merkingu.

Hægt er að skoða vöruúrval á heimasíðu VEGA www.vega.is

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið