Keppni
Sigurður bakara-og konditormeistari hjá Bernhöftsbakaríinu sigraði keppnina: Verðlaunabrauð LABAK

Sigurður M. Guðjónsson bakara-og konditormeistari hjá Bernhöftsbakaríinu og Jóhannes Felixson, formaður LABAK
Landssamband bakarameistara (LABAK) og Matís efndu til keppni um „Verðlaunabrauð LABAK“, en 11 brauðuppskriftir bárust í keppnina. Það var síðan Sigurður M. Guðjónsson bakara-og konditormeistari hjá Bernhöftsbakarí sem varð sigurstranglegastur, en verðlaunin voru afhent í húsakynnum Matís nú um helgina þar sem viðstöddum gafst kostur á að smakka á brauðinu og kynna sér það nánar.
Við það tækifæri sagði Jóhannes Felixson, formaður LABAK, frá tilurð keppninnar, en tilgangur hennar er að stuðla að bættri hollustu í fæði landsmanna. Hann nefndi að aðeins einn bakarameistari hefði verið í dómnefndinni en hins vegar lögð áhersla á að fá fólk á ólíkum aldri og af báðum kynjum til dómarastarfanna til að tryggja að mest áhersla væri lögð á bragðgæði og áferð. Verðlaunabrauð LABAK væri með réttu brauð fyrir allan almenning enda valið af almenningi sjálfum.
Embætti landlæknis tók þátt í að setja þær kröfur sem brauð þurftu að uppfylla til að taka þátt í keppninni.
Gerð var sú krafa að brauðin uppfylltu allar kröfur norræna skráargatsins auk þess að geta flokkast sem heilkornabrauð en það þýðir að a.m.k. helmingur mjölsins er heilmalað korn sem inniheldur öll upprunaleg næringarefni kornsins. Ennfremur var gerð sú krafa að a.m.k. 20% af mjölinu væri íslenskt bygg, að því er fram kemur á vef Samtaka iðnaðarins.
Uppskriftin sem ég notaði hefur verið notuð hjá okkur í Bernhöftsbakarí í um tvö ár. En henni var örlítið breytt, vegna þess að brauðin urðu að innihalda 20 % bygg. Það sem gerir brauðið sérstakt og gefur því þennan mikla karakter, er að graskers og sesamfræin í brauðinu eru ristuð. Auk þess er brauðið lagað á gamla mátann með fordegi og er lang hefað í kæli yfir nótt.
…sagði Sigurður vonum glaður með verðlaunin í samtali við veitingageirinn.is.

Sigurður M. Guðjónsson ásamt hluta af dómnefnd sem skipuðu: Ásgeir Þór Tómasson, bakarameistari, Hótel- og matvælaskólanum, Hólmfríður Þorgeirsdóttir, matvæla- og næringarfræðingur, Embætti landlæknis, Jóhanna Eyrún Torfadóttir, Lýðheilsufræðingur, Háskóla Íslands, Kári Steinn Karlsson, afreksíþróttamaður og Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur, Matís
Heilsubrauðið þurfti að uppfylla eftirfarandi kröfur:
Heilkorn a.m.k. 50% af mjölinu og 30% af heildarþyngd brauðsins Íslenskt bygg a.m.k. 20% af mjölinu (40% af heilkorninu) Fita að hámarki 7 g/100 g Enginn viðbættur sykur Natríum að hámarki 0,4 g/100 g sem jafngildir 1g salt/100 g Trefjar a.m.k. 6 g/100 g.

Verðlaunabrauð LABAK 2013.
Sala á verðlaunabrauðinu hófst í bakaríum innan LABAK föstudaginn 23. ágúst s.l.
Myndir tók Kristín Edda Gylfadóttir fyrir Matís
Mynd af brauði: Brynjólfur Jónsson (Binni ljósmyndari)
Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBrasa tekur á móti fyrstu gestum í Smáratorgi. Sjáðu stemninguna frá opnunarpartýinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVendoro einfaldar pantanir og samskipti í veitingageiranum: Árni Þór Árnason matreiðslumaður segir frá þróun appsins
-
Markaðurinn1 dagur síðanÓska eftir rekstraraðila fyrir 65 herbergja heilsárshótel á landsbyggðinni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSmassaður jólaborgari með purusteik og camembert sló í gegn – Myndir
-
Markaðurinn1 dagur síðanErt þú aðilinn sem við erum að leita að?
-
Markaðurinn5 dagar síðanDesembertilboð fyrir veitingageirann með allt að 45 prósenta afslætti
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanForréttabarinn opnar útibú á horni Frakkastígs og Hverfisgötu
-
Markaðurinn11 klukkustundir síðanVantar þig virkilega góða jólagjöf?






