Smári Valtýr Sæbjörnsson
Fagmönnum í veitingageiranum veittar viðurkenningar fyrir afburðaárangur á sveinsprófi
Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykavík (IMFR) var haldin hátíðleg í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur nú á dögunum.
Þetta var tíunda nýsveinahátíðin sem IMFR hefur haldið til heiðurs nýsveinum sem lokið hafa sveinsprófi með afburðaárangri. Að þessu sinni hlutu 24 nýsveinar úr 14 löggildum iðn- og verkgreinum viðurkenningar fyrir afburðaárangur í sinni iðngrein á sveinsprófi. Nýsveinarnir lærðu iðnir sínar við sex verkmenntaskóla á landinu.
Fjórir fagmenn í veitingageiranum fengu viðurkenningar fyrir afburðaárangur á sveinsprófi árið 2015.
- Folda Guðlaugsdóttir (Icelandair hotels) hlaut silfur í sveinsprófi í matreiðsluiðn.
- Hrefna Katrínardóttir (Icelandair hotels) hlaut silfur í sveinsprófi í framreiðsluiðn.
- Iðunn Sigurðardóttir (Fiskfélagið) hlaut silfur í sveinsprófi í matreiðsluiðn.
- Tómas Ingi Hlynsson (Icelandair hotels) hlaut silfur í sveinsprófi í framreiðsluiðn.
Jafnframt hlutu meistarar þessara nemenda viðurkenningu IMFR fyrir alúð og virðingu við kennslu og faglega leiðsögn iðnsveina. Það eru Gígja Magnúsdóttir, Páll Hjálmarsson framreiðslumeistarar hjá Hilton Reykjavík Nordica og Karl Kristinsson matreiðslumeistari hjá Icelandair hotels Reykjavík Natura.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson ávarpaði gesti, en Ólafur er verndari hátíðarinnar og afhenti hann viðurkenningarnar. Í ávarpi áréttaði forseti framlag iðnaðarmanna til uppbyggingar íslensks þjóðfélags og mikilvægi þess að efla iðnmenntun í anda þeirrar sýnar sem einkennt hefur forystusveit iðanaðarmannafélaganna.
Auk Ólafs ávarpuðu hátíðina Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, Illugi Gunnarsson, mennta- og menningaráðherra og forseti borgarstjórnar Sóley Tómasdóttir.
Myndir: Jón Svavarsson
-
Frétt6 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni6 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Keppni6 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt1 dagur síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt2 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum










