Sverrir Halldórsson
Góður gangur hjá Garra
Hagnaður Garra ehf. nam rúmum 213 milljónum króna á síðasta ári og stóð hagnaðurinn í stað á milli ára.
Rekstrartekjur fyrirtækisins námu 3,2 milljörðum króna og jukust um rúmlega 300 milljónir króna frá árinu 2013. Aftur á móti jókst launakostnaður, kostnaðarverð seldra vara og annar rekstrarkostnaður milli ára, að því er fram kemur á vef Viðskiptablaðsins.
Eignir fyrirtækisins námu 1.293 milljónum króna í árslok en skuldir voru 506 milljónir króna. Nam eigið fé félagsins því 787 milljónum króna í lok ársins og var eiginfjárhlutfall þess því 61%.
Garri ehf. er innflutningsfyrirtæki sem var stofnað árið 1973 og hefur því verið starfandi í 40 ár. Heildverslunin sérhæfir sig í sölu og þjónustu við matvælafyrirtæki, stóreldhús, veitingastaði og opinbera aðila.
Magnús R. Jónsson stofnaði Garra og er stærsti hluthafi fyrirtækisins með 67,5% hlut. Magnús Rósinkrans Magnússon, sonur hans, er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og á jafnframt 22,5% eignarhlut.
Greint frá á vb.is
Mynd: úr safni.
-
Markaðurinn3 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Food & fun5 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn6 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn4 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Markaðurinn4 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Markaðurinn3 dagar síðanMinnkum matarsóun
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanÆtti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?





