Vertu memm

Bjarni Gunnar Kristinsson

Svona eru ferðalögin hjá Bjarna og fjölskyldu

Birting:

þann

Bjarni Gunnar Kristinsson

Bjarni Gunnar Kristinsson

Bjarni Gunnar Kristinsson og fjölskylda ferðuðust víða um Ítalíu í sumar og voru í 16 daga og mest 3 daga á hverjum stað.

Ein frægasta trufflu búð var heimsótt sem staðsett er í bænum ALba á Ítalíu en búðin heitir Tartufi Morra og var stofnuð árið 1930 og var fyrsta búðin sem bauð upp á hvíta trufflusveppi.  Árlega er haldin hátíð á vegum búðarinnar þar sem trufflur eru boðnar upp til góðgerðamála og kostar allt að 16 milljónir 1 stk (stór hvít) en sumar trufflur eru ódýrari og kosta um 250 evrur kílóið.  Í myndbandinu má sjá þegar Bjarni kaupir eina trufflu.

Þessi var bara lítil og kostaði ekki það mikið, en bragðgóð var hún,

sagði Bjarni í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um Tartufi Morra.

Farið var meðal annars í heimsóknir til framleiðenda á Ítalíu, ítalskir réttir gerðir á einfaldan máta og margt fleira sem hægt er að horfa á í þessu skemmtilega myndbandi sem er tæp hálftími að lengd:

 

Bjarni Gunnar Kristinsson er matreiðslumeistari að mennt.Hann hefur verið í íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2000 til 2014 og var fyrirliði þess þegar það hlaut gull– og silfurverðlaun á Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Erfurt í Þýskalandi 2008.Bjarni útskrifaðist frá Hótel– og veitingaskólanum um miðjan tíunda áratuginn en hefur síðan þá unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna í sínu fagi og starfað sem gestakokkur á virtum veitingahúsum um allan heim.  Ennfremur hefur Bjarni Gunnar komið að gerð fjölmargra sjónvarpsþátta um matreiðslu.

 

Mynd: skjáskot úr myndbandi.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið