Vertu memm

Uppskriftir

Ofnbökuð svínasíða með kryddblöndu og bjór

Birting:

þann

Ofnbökuð svínasíða með kryddblöndu og bjór

Fyrir 4

Það eru nokkur atriði sem þú getur gert við svínakjötsafganga. Það er gott að hafa nóg til. Besta Taco-fylling allra tíma er svínakjöt með salsa, dýrindis samlokufylling með ögn af BBQ-sósu. Líka hægt að saxa smá vorlauk og framreiða í kínverskum pönnukökum ásamt hoisin-sósu. Þetta er máltíð sem er gott að eiga í frystinum þegar þarf bragðgóðan skyndibita.

Fyrir kryddblöndu

Ögn ólífuolía

2 tsk. salt

1 tsk. cayenne pipar

1 tsk. malað cumin

2 stk. saxaður hvítlaukur

1 tsk. reykt paprika (duft)

1 msk. púðursykur

1 bjór eða jafnvel tveir (einn í réttinn, hinn fyrir kokkinn)

Aðferð:

Leggið fituhliðina upp og þurrkið hana með pappír. Skerið með beittum hníf nokkrar skálínur yfir fituna og endurtakið í hina áttina á ská. Blandið saman salti og kryddunum í litla skál og nuddið kjötið með kryddunum og púðursykrinum.

Úðið yfir ólífuolíu, setjið í poka og setjið kjötið í ísskáp í lágmark klukkutíma

Hitið ofninn í 220 °C. Leggið á fituhlið upp næstu 10 til 15 mínútur. Passið upp á að skoða kjötið reglulega því á einhverjum tímapunkti fer fitan að brúnast. Þegar það gerist, lækkið í 90 °C og látið það malla  með loki í 90 mínútur.

Eftir 90 mínútur, opnið einn bjór og hellið í  ofnfatið. Látið malla í annan klukkutíma.  Soðinu verður að hella yfir kjötið þegar það er sneitt eða rifið.

Bjarni Gunnar Kristinsson

Bjarni Gunnar Kristinsson

Höfundur og mynd: Bjarni Gunnar Kristinsson

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið