Vertu memm

Keppni

Hafsteinn keppir í dag í Global Young Chefs

Birting:

þann

Hafsteinn ÓlafssonNú stendur keppnin „Global Young Chefs Challenge“ um besta unga matreiðslumann Norður Evrópu yfir í Álaborg í Danmörku. Íslenski keppandinn Hafsteinn Ólafsson er 23 ára og hefur þrátt fyrir ungan aldur mikla reynslu af matreiðslukeppnum.

Hafsteinn starfar á Apótek Restaurant og vann tvívegis silfur í keppninni „Matreiðslumaður ársins“ árin 2012 og 2013, hann keppti árið 2013 í keppninni „Nordic Chef Junior“ og var aðstoðarmaður í Bocuse d´Or keppninni 2013. Hafsteinn er jafnframt í Kokkalandsliðinu.

Þetta er fyrir mér ný áskorun og öðruvísi keppni en ég hef áður reynt, tíminn í eldhúsinu er stuttur og tímapressan töluverð.

Segir Hafsteinn sem kemur sterkur til leiks og hellir sér á fullu í Kokkalandsliðsæfingar að lokinni keppni.

Verkefni Hafsteins í keppniseldhúsinu er að útbúa þriggja rétta máltíð, forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem svo er dæmt af hópi dómara. Þráinn Freyr Vigfússon frá Lava í Bláa Lóninu er fulltrúi Íslands í dómnefndinni.

Þráinn Freyr Vigfússon

Þráinn Freyr Vigfússon frá Lava í Bláa Lóninu er fulltrúi Íslands í dómnefndinni.

Keppnisúrslit í „Global Young Chefs Challenge“ verða tilkynnt í kvöld 5. júní og mun sigurvegari Norður Evrópu keppninnar keppa á næsta ári í alþjóðlegri úrslitakeppni um titilinn „Global Young Chef“.

Síðar í dag keppir Steinn Óskar Sigurðsson á sama stað í keppninni „Global Chefs Challenge“.

Það er Klúbbur matreiðslumeistara sem sendir sex keppendur til leiks í einstaklingskeppnum í Danmörku dagana 4.-6. júní.

 

Myndir: Sveinbjörn Úlfarsson

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið