Frétt
Noma opnar á ný | Selur Noma íslenskan mat
Það verður nú að segjast að mikið hefur verið í gangi á veitingastaðnum Noma í Danmörku að undanförnu, en í júlí hafa staðið yfir miklar framkvæmdir að breyta öllu eldhúsinu og stækka það töluvert og opnaði staðurinn að nýju núna 1. ágúst 2013.
Þegar staðurinn opnaði fyrst í nóvember 2003 þá voru níu til tíu manns að starfa á staðnum: þrír þjónar og einn lærlingur og í eldhúsinu, þrír matreiðslumenn og tveir lærlingar. Eldhúsið var þá ekki stórt, fjórir gasbrennarar og ásamt ýmsum búnaði sem fylgir eldhúsi. Í gegnum árin hefur starfsfólkið þurft að nýta sér allt pláss sem hægt er að nýta og núna tíu árum síðar eru tæp fimmtíu manns sem starfa í eldhúsinu og nær tuttugu í sal.
Ný matreiðslubók frá René
René Redzepi eigandi Noma hefur unnið að nýrri bók í um þrjú ár og er hún komin í forsölu á Amazon, en René hefur gefið út fjölmargar bækur. Nýjasta bókin er með 100 nýjum uppskriftum frá Noma og nokkurskonar persónuleg dagbók skrifuð af René.
Myndir úr nýjustu bók René:
Selur Noma íslenskan mat
Eyjólfur Friðgeirsson, sem rekur og á Íslenska Hollustu, framleiðir allsérstakan mat úr íslenskum hráefnum. Hann notar m.a. fjallagrös, ætihvönn og þara og einn viðskiptavinurinn er veitingastaðurinn Noma. Eyjólfur var morgunútvarpi Rásar tvö þar sem hann ræddi um fyrirtækið sitt, en hann safnar hráefninu í vörurnar hérlendis og beinir með starfi sínu athygli að því að í náttúran sjálft er meiri matarkista en margur hyggur og stuðlar jafnframt að því að endurvekja þjóðlega íslenska matargerð. Eyjólfur ræddi um þessar matvörur í Morgunútvarpinu og segir frá hvernig þetta byrjaði allt saman að selja íslenskan mat til Noma.
Meðfylgjandi myndir og teikning er af nýja eldhúsi Noma:
Myndir: noma.dk
-
Keppni4 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Íslandsmót barþjóna3 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Markaðurinn6 dagar síðanKlassískt lasanja fær nýtt bragð með kotasælu
-
Frétt2 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki










