Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Soho flytur í nýtt húsnæði | Opnar veitingastað í sama húsnæði

Birting:

þann

Veisluþjónustan Soho í Reykjanesbæ

Wellington í metravís.
Örn á fullu að undirbúa veislur.

Örn Garðarsson matreiðslumeistari og eigandi veisluþjónustunnar Soho með sleggjuna á lofti

Örn Garðarsson með sleggjuna á lofti.
Framkvæmdir hófust í fyrra, en þessi mynd var tekin 14. júlí 2014

Veisluþjónustan Soho í Reykjanesbæ hefur flutt alla starfsemi sína úr gamla húsnæðinu í Grófinni 10c sem var tæplega 140 fermetrar í 340 fermetra húsnæði við Hrannargötu 6 (áður Ragnars bakarí).

Þegar fréttamaður veitingageirans leit við þá var Örn Garðarsson matreiðslumeistari og eigandi veisluþjónustunnar Soho á fullu að undirbúa veislur, en gaf sér tíma í stutta skoðunarferð. Það er greinilegt að það er matreiðslumeistari sem hannaði veislueldhúsið, allt útpælt og virkilega vel heppnuð aðstaða.

Veisluþjónustan Soho í Reykjanesbæ

Walk-inn kælar og frystir

Örn lét hanna húsnæðið i kringum þær stærðir sem þarf fyrir reksturinn, en hann setti upp tvo 12 fermetra walk-inn kæla og einn 12 fermetra walk-inn frysti, um 27 fermetra „boiling room“ þar sem öll eldun fer fram. Auk þess setti hann upp lager, skrifstofu, kaffistofu starfsmanna, búningsherbergi, þvotthús, uppvask og um 12 fermetra gróðurhús.

Veisluþjónustan Soho í Reykjanesbæ

Nánari lýsing, upplýsingar og teikning af húsnæðinu má skoða með því að pdf_icon smella hér.

Að auki er gert ráð fyrir veitingastað í 50 fermetra veitingasal sem ekki er kominn í gagnið:

Ætlum að klára að koma okkur almennilega fyrir í eldhúsinu áður en við förum að framkvæma í veitingasalnum, en veitingastaðurinn ætti að verða klár með vorinu.

, sagði Örn í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um veitingastaðinn sem kemur til með að taka um 30 manns í sæti.

Veisluþjónustan Soho í Reykjanesbæ

Bakarí hornið

Veisluþjónustan Soho í Reykjanesbæ

Húsnæðið í Grófinni 10c þar sem Soho var til húsa er í eigu Arnars og er það núna til sölu.

 

Töluvert er bókað framundan hjá Erni, fermingar, brúðkaup, árshátíðir ofl. en hann getur núna tekið mun fleiri veislur að sér eftir flutninginn.

 

/Smári

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið