Pistlar
Lávarðadeild KM í fræðsluferð til Suðurnesja – Myndir
Lávarðadeild Klúbbs Matreiðslumeistara fór í fræðsluferð til Suðurnesja þriðjudaginn 21. nóvember s.l.
Flugeldhús Icelandair
Fyrst var farið og skoðað Flugeldhús Icelandair í boði Jóns Vilhjámssonar. Ótrúlegt eldhús sem afgreiðir þúsundir fjölbreyttar máltíðir á dag við ótrúlega aðstöðu þar sem farþegum og starfsfólki á flugvellinum hefur margfaldast á nokkrum árum. Þarna eru unnin kraftaverk á hverjum degi.
Skólamatur
Síðan var farið og kíkt á nýja eldhúsið hjá Skólamat sem staðsett er í Keflavík. Við skoðuðum eldra eldhúsið fyrir nokkrum árum, en síðan hafa þúsundir máltíða bæst við. Eldaðar eru 10 þúsund skólamáltíðir á dag fyrir 44 skóla. Jón Axelsson matreiðslumeistari sýndi okkur þeirra frábæra nýja eldhús og útskýrði flæðið í vinnslunni á snilldarlegan hátt. Frábær rekstur.
Veisluþjónustan Soho
Því næst tókum við smá bíltúr um Keflavík en undirritaður þekkir nokkuð þar til. Þá var farið og skoðað hjá hinum landsþekkta snillingi Erni Garðars eins og flestir þekkja hann, á veislueldhús Soho sem stendur bókstaflega á klettabrún í Keflavíkurbæ.
Þarna fengu menn að skoða eldhúsið og síðan bauð Örn okkur upp á frábæran steiktan lax sem var algert lostæti.
Svo var haldið aftur inneftir eins og sannir Keflvíkingar segja.
Myndir tók Guðjón Steinsson matreiðslumeistari.

Hilmar B. Jónsson
Matreiðslumeistari
-
Frétt2 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni6 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn7 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni7 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd






































