Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt veitingahús við Grandagarð 9
Sjanghæ er nýtt austurlenskt veitingahús við Grandagarð 9 sem opnar í dag fimmtudaginn 15. janúar. Boðið er upp á hlaðborð með miklu úrvali á 1.790 kr. bæði í hádeginu og á kvöldin. Af matseðli er jafnframt hægt að velja milli fjölda girnilegra rétta.
Matargerðin er í senn klassísk og fjölbreytt og byggir á hefðum hinna ýmsu Asíulanda. Á boðstólum eru alþekktir og vinsælir réttir eins og djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu og fjölbreyttir núðluréttir auk kjúklings, svínakjöts, nauts og lambs í alls konar útgáfum. Auk þess er lögð áhersla á ferskt sjávarfang, ekki síst í réttum dagsins, enda er höfnin handan götunnar og fiskmarkaðurinn spölkorn frá. Ha Hoang Lam frá Víetnam stendur vaktina í eldhúsinu ásamt Analisa Montecello frá Filippseyjum.
Opið er alla daga á Sjanghæ, mánudaga til laugardaga kl. 11.30-21 og sunnudaga kl. 16-21. Hægt er að taka með sér allan mat og sérstaklega hagstætt er takeaway-tilboð á 1.790 kr. á mann. Pöntunarsíminn er 517-3131. Sjanghæ býður auk þess upp á veisluþjónustu þar sem Mínir menn, veisluþjónusta Magnúsar Inga Magnússonar veitingamanns, sem rekur einnig Sjanghæ, Sjávarbarinn og Texasborgara sjá um veisluna þína.
Nánari upplýsingar um Sjanghæ er að finna á vef staðarins, sjanghae.is, og á Facebook.
Mynd: úr safni
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni4 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn4 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Frétt5 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
-
Frétt6 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð



