Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

„Fólk á að vera óhrætt og nota hugmyndaflugið, það er hægt að nýta allt….“

Birting:

þann

Jónas Oddur Björnsson og Ómar Stefánsson - Hannesarholt Restaurant

Jónas Oddur Björnsson og Ómar Stefánsson

Nýverið tóku kokkarnir Jónas Oddur Björnsson og Ómar Stefánsson tímabundið við veitingarekstri Hannesarholts.

Jónas og Ómar leggja sig alla fram við að nota hráefni sem finnast í íslenskri náttúru og að nýta allar afurðir sem best, að því er fram kemur á visir.is.

Það er alveg hundrað prósent nýting hjá okkur strákunum, við erum alveg á móti matarsóun

, segir Jónas og nefnir sem dæmi að hann hafi nýverið náð sér í greni sem hann notar til þess að búa til greniolíu.  Greniolíuna stefni hann meðal annars á að nota til þess að bragðbæta ís. Einnig hafa þeir notað greniköngla í matreiðsluna.

Ég nota könglana sem krydd. Þeir gefa rosalega góðan svona jólakeim.

, segir Jónas í samtali við visir.is og bætir við að ekki þurfi að leita langt yfir skammt og mikið sé af náttúruafurðum sem hægt sé að nýta.

Hannesarholt Restaurant

Hannesarholt Restaurant

Það er til dæmis haugarfi sem fólk lítur ekki við. En þegar þú ert búin að þrífa arfann og borðar hann er þetta bara eins og salat. Orðið haugarfi er bara mjög fráhrindandi og veldur því að fólk er hrætt við að borða hann.  Fólk á að vera óhrætt og nota hugmyndaflugið, það er hægt að nýta allt.

, segir Jónas að lokum í samtali við visir.is.

Meðfylgjandi myndir eru úr eldhúsi þeirra á Hannesarholt Restaurant.

Hannesarholt Restaurant

Hannesarholt Restaurant

Hannesarholt Restaurant

Hannesarholt Restaurant

 

 

Myndir: af facebook síðu Hannesarholt Restaurant.

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið