Sverrir Halldórsson
Heimsókn í mötuneyti Plain Vanilla – Veitingarýni
Mötuneyti Plain Vanilla er staðsett á efstu hæð á Laugavegi 77 þar sem Landsbankinn var til margra ára, en eins og áður segir þá er þar nú áðurnefnt fyrirtæki.
Yfirmatreiðslumeistari er Auðunn Sólberg Valsson, en hann lærði sín fræði á Stillholti Akranesi og hér að neðan er ferilskrá hans:
| Vinnustaðir: | Tímabil: | Staða: |
| Plain Vanilla Games | 2014- | Matreiðslumeistari |
| 1912 Klettagörðum | 2013-1014 | Matreiðslumeistari |
| Frjálsi Fjárfestingarbankinn/Drómi | 2005-2013 | Matreiðslumeistari |
| Icelandair Hótel Nordica | 2004-2005 | Vaktstjóri Veislueldhúss |
| Icelandair Hótel Selfoss | 2002-2004 | Yfirmatreiðslumeistari |
| Veitingahúsið Hornið | 2001-2002 | Yfirmatreiðslumeistari |
| Hótel Loftleiðir, Sumarafleysingar | 2001 | Matreiðslumeistari |
| Veitingahúsið Einar Ben, Rvík | 1999-2001 | Yfirmatreiðslumeistari |
| Veitingahúsið Café Ópera, Rvík | 1997-1999 | Yfirmatreiðslumeistari |
| Veitingahúsið Astro, Rvík | 1996-1997 | Yfirmatreiðslumeistari |
| Grillið Hótel Saga, Rvík | 1986-1996 | Vaktstjóri |
| Hótel Stykkishólmur | 1984-1986 | Yfirmatreiðslumeistari |
| Hótel Höfn, Hornafirði | 1984 | Matreiðslumaður |
| Veitingahúsið Stillholt, Akranesi | 1980-1984 | Matreiðslunemi |
Að koma þarna inn er eins og að koma inn á veitingastað, eldhúsið er opið og á annarri hliðinni eru barstólar sem matargestir geta setið og snætt og fylgst með hvað er að gerast í eldhúsinu, sem ég gæti trúað að sé hvíld frá stöðugum rýni í tölvuskjá, einnig er hvíldarherbergi þar sem starfsmenn geta lagt sig, hausinn þarf jú að vera skýr, svo er skjár sem sýnir notkun á QuizUp í rauntíma í heiminum.
Svo var komið að matnum og daginn sem ég kom var léttsaltaður þorskur með ætiþystlum, tómat, papriku, spergli og steinseljukartöflum, einnig var glæsilegur salatbar, smakkaðist þetta alveg frábærlega.
Eitt sem Auðunn sagði mér sem ég átti ekki von á að heyra, en hann færir bókhald yfir eldhúsið í dollurum og er ástæða sú að hann er í samstarfi við matreiðslumenn í Californiu sem vinna í samskonar fyrirtækjum þar og þeir eru að miðla málum sín og milli. Það merkilega er að kostnaður per mann er á pari við það í Californiu og er lægra heldur en hjá Apple, og er ekki hægt að segja en það sé góður árangur.
Hér að neðan getur að líta týpískan vikumatseðil og vegna áðurnefnds samstarfs er hann á ensku:
Monday
Ovenbaked Ling with roasted vegetables, curry sauce and rice
Chicken Beans and Orange salad
Polenta salad with tomatoes and basil
Stuffed Aubergine with mozzarella
Tuesday
Greek Mossaka with rice and eggplant
Cucumber and bean salad
Sweet potato and zukkini salad
Spinach Canneloni with cottage cheese
Wednesday
Barley risotto with herbs and marinated feta
Potato salad Ancienne
Melon and tomato salad
Fish soup with tomato and red curry
Thursday
Spaghetti Putanesca
Broccoli salad with red onion
Tomato salad with dijon mustard
Chicken and Noodles
Friday
Roast Beef and Sauce Bourguignonne with fried potatoes
Oven roasted vegetables
Pinapple and cucumber salad
Green salad with olives and grilled artichokes
Fruit salad with mint and honey
Tortellini with tomatoes and mozzarella
Þakkaði ég pent fyrir mig og hélt aftur niður á jörðina.
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTímamót fyrir íslenska barþjóna með nýjum samstarfssamningi
-
Kokkalandsliðið2 dagar síðanNýr þjálfari kokkalandsliðsins, Georg Arnar leiðir liðið til Lúxemborgar 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólaleikur ársins leitar að frumlegustu jólakræsingu landsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands í Hörpu um helgina, fjölbreyttur markaður fyrir veisluborðið og jólagjafir
-
Markaðurinn4 dagar síðanVantar þig virkilega góða jólagjöf?
-
Markaðurinn4 dagar síðanOstakrans sem stelur senunni á jólaborðinu
-
Frétt3 dagar síðanAsahi varð fyrir stórfelldri netárás, allt að 1,5 milljón viðskiptavina í hættu
-
Markaðurinn2 dagar síðanOpnunartími Innnes um jólahátíðina – Innnes opening hours during the Christmas holidays
















