Smári Valtýr Sæbjörnsson
Sprenglærður andsk… í faginu og meistari í báðum
Issi kokkur, eða Jóhann Issi Hallgrímsson eins og hann var skírður, grillar heila lambaskrokka á hátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík um sjómannahelgina og hefur gert síðastliðin þrjú ár.
Issi starfar núna sem sölumaður hjá ÓJ og K , Sælkeradreifingu, en hann er lærður bæði sem framreiðslu-, og matreiðslumeistari. Hann lærði fræðin sín á Hótel loftleiðum og á Aski, útskrifaðist árið 1995 sem framreiðslumaður og sem matreiðslumaður árið 2006 og meistari árið 2010.
Issi hefur starfað á hótel loftleiðum, Veitingahúsinu við Bláa lónið, Hótel Northern light inn, Norrænu og á hinum ýmsum fiskiskipum, en hann var t.a.m. starfsmaður mánaðarins á Hótel Loftleiðum, en það var Jón Páll framreiðslumaður sem átti veg og vanda af því vali.
Finnst dapurlegt hvað framreiðslumaðurinn er lítils metinn, og eftir fund hjá Matvís með Framreiðslumönnum átti að fara spýta í lófana og stofna m.a. félag Framreiðslumeistara og senda fundargerð ofl. Er ennþá að bíða, kannski bara léleg tenging eða internetið liggur niðri, en fundurinn var 1. okt. s.l.
, sagði Issi hress í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um hvað honum finnst um fagið í dag.
Kostar pening og tíma að halda svona heljarinnar partý
Þetta er í 3ja skiptið sem ég held þessa veislu og alltaf um sjómannahelgina, Kaldi Bruggsmiðjan hefur alltaf aðstoðað mig ásamt öðrum birgjum. Það kostar pening og tíma að halda svona heljarinnar partý og mæting hefur verið misjöfn, sem hefur valdið vonbrigðum, og var mér þá bent á að hafa aðgangseyri, en ég er ekki tilbúinn að fara græða á þessu (nema ánægjuna) því ætla ég að leggja til á næsta ári verður aðskotabaukur til staðar og gestir geta látið gott af sér leiða sem mun renna óskipt til einhverrar sjómannafjölskydu sem þarf á aðstoð að halda.
Hugmyndina hef ég frá góðum vini frá Vestmannaeyjum, Ósvaldi eða Obba einsog hann er kallaður, að hafa svaklegt partý með mat og drykk opið svið með söngkerfi og allir sem kunna eitthvað fyrir sér í tónlist, geta skemmt sér og öðrum.
Ég hlakka sérstaklega til næsta partýs því þetta er að fá umfjöllun. Og vil ég þakka öllum sem hafa gefið til þessa verkefnis og vona að það verði áframhald á því.
Hér að neðan er hægt að horfa á viðtal við Issa á sjónvarpsstöðinni INNTV þegar Magnús Ingi var í matarleit á Reykjanesinu á hátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík:
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Girnilegt camembert jólatré með döðlu og pekan krönsi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Mikil uppbygging framundan á Hofsstöðum – Veitingastaðurinn með eigin framleiðslu og hráefni úr heimabyggð
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum – Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar
-
Frétt3 dagar síðan
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Wolt “wrapped” samantektin – Það sem Íslendingar pöntuðu á árinu 2024
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Kalkúnaveisla með öllu tilheyrandi
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa
-
Frétt2 dagar síðan
Innköllun á sviðasultu frá Kjarnafæði