Vertu memm

Keppni

Kokkalandsliðið sýnir keppnisborð í Smáralind á sunnudaginn

Birting:

þann

Kokkalandsliðið

Kokkalandsliðið æfir nú stíft fyrir Heimsmeistarakeppnina í matreiðslu sem fram fer í Luxemborg í nóvember nk. Önnur keppnisgreinin er kalt borð eða Culinary Art Table þar sem sýndir eru yfir 30 réttir sem tekur um 48 klukkustundir að útbúa. Segir í fréttatilkynningu frá Kokkalandsliðinu.

Nú gefst landsmönnum kostur á að skoða keppnisborðið

Logo - KokklandsliðiðBorðið er sannkallað listaverk þar sem hvert smáatriði hefur verið hugsað í þaula. Liður í æfingarferlinu er að flytja réttina milli staða þannig að þeir haldi fullkomnu útliti sínu enda þurfa þeir að vera til sýnis í margar klukkustundir á keppnisstað. Nú gefst landsmönnum kostur á að skoða keppnisborðið þegar kokkarnir stilla því upp til sýnis í Smáralind sunnudaginn 19. október kl. 13-18.

700 af færustu kokkum heims í heimsmeistarakeppninni

Heimsmeistarakeppnin, Culinary World Cup, er haldin á fjögurra ára fresti. Þar mætast yfir 700 af færustu kokkum heimsins frá um 40 þjóðum og keppa sín á milli um gull, silfur og brons verðlaun. Keppt er í tveimur greinum, annars vegar er keppt í köldu borði eða Culinary Art Table og hins vegar er keppt í heitum mat eða Hot Kitchen. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti.

Meðlimir Kokkalandsliðsins

Kokkalandsliðið sem hefur æft fyrir keppnina síðustu 18 mánuði er skipað færustu matreiðslumönnum landsins, 13 talsins:

  • Hafliði Halldórsson faglegur framkvæmdastjóri liðsins
  • Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði
  • Viktor Örn Andrésson liðsstjóri
  • Fannar Vernharðsson
  • Bjarni Siguróli Jakobsson
  • Ylfa Helgadóttir
  • Hafsteinn Ólafsson
  • Axel Clausen
  • Garðar Kári Garðarsson
  • Daníel Cochran
  • Ari Þór Gunnarsson
  • Hrafnkell Sigríðarson
  • María Shramko

Mynd: Kokkalandsliðið

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið