Vertu memm

Markaðurinn

Garri opnar nýja vefverslun 27. október

Birting:

þann

Garri opnar nýja vefverslun 27. október

Heildverslunin Garri mun opna nýja og endurbætta vefverslun þriðjudaginn 27. október. Markmiðið er að einfalda viðskipti, auka hraða og bæta þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins.

Fram kemur í tilkynningu frá Garra á www.garri.is að við þróun nýju vefverslunarinnar hafi verið tekið mið af ábendingum og óskum viðskiptavina. Sérstök áhersla hafi verið lögð á að bæta notendaupplifun og auðvelda aðgengi að vörum.

Öflugri leit og einfaldari pantanir

Meðal helstu nýjunga er endurbætt pöntunarkerfi sem nefnist „Mest pantað“ og kemur í stað „Hraðpöntunar“. Þar birtast vörur sem viðskiptavinir hafa pantað síðustu þrjá mánuði.

Nú verður einnig hægt að fjarlægja vörur af listanum og bæta öðrum við, jafnvel þótt þær hafi ekki verið pantaðar nýlega.

Leitarvélin hefur jafnframt verið endurbætt og nýjar síur auðvelda viðskiptavinum að finna þær vörur sem þeir leita að. Meðal annars verður hægt að sía leitarniðurstöður eftir vöruflokkum og tilboðum.

Vefverslunin fær einnig nýtt og nútímalegra útlit, auk þess sem virkni og hraði hafa verið bætt.

Viðskiptavinir þurfa að skrá sig inn á ný

Garri vekur athygli á því að allir notendur þurfi að skrá sig inn á reikninga sína á ný þegar vefverslunin verður opnuð.

Notendur munu áfram nota sama netfang og áður, en mikilvægt er að netfangið sem tengist reikningnum sé rétt og að viðkomandi hafi aðgang að því.

Þeir sem muna ekki lykilorðið sitt geta endurstillt það með því að fá sendan hlekk í tölvupósti.

Öll fyrri gögn munu flytjast yfir í nýju vefverslunina. Þar á meðal eru pöntunarsaga, vistaðir vörulistar og aðrar upplýsingar sem tengjast reikningum viðskiptavina.

Garri þakkar viðskiptavinum fyrir ábendingar og samtöl sem hafa nýst við þróun vefverslunarinnar. Með breytingunum vill fyrirtækið koma betur til móts við þarfir viðskiptavina og gera dagleg innkaup þeirra einfaldari og skilvirkari.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið