Frétt
Fjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur

KFC mun bjóða upp á drykki frá Coca-Cola á veitingastöðum sínum í Bandaríkjunum frá og með vorinu 2027.
Mynd: Aðsend.
KFC hefur samið við Coca-Cola um sölu drykkja á öllum veitingastöðum keðjunnar í Bandaríkjunum. Þar með lýkur nær fjögurra áratuga samstarfi KFC og PepsiCo.
Breytingin nær til 3.718 veitingastaða og verður innleidd frá og með vorinu 2027. Ekki hefur verið upplýst hvað samningurinn er metinn á.
Samstarfið hófst þegar PepsiCo keypti KFC
Viðskiptasamband KFC og PepsiCo nær aftur til ársins 1986 þegar PepsiCo keypti skyndibitakeðjuna. KFC var síðar aðskilið frá PepsiCo ásamt Pizza Hut og Taco Bell árið 1997 en samstarfið um sölu drykkja hélt áfram.
Coca-Cola og KFC hafa nú gert með sér nýjan samning sem tekur eingöngu til bandarískra veitingastaða keðjunnar. Ekki hefur komið fram hvort breytingin muni síðar ná til annarra markaða, þar á meðal Íslands.
„Þetta nýja samstarf sameinar Coca-Cola og KFC í Bandaríkjunum í fyrsta sinn.“
segir Dagmar Boggs, yfirmaður sölu Coca-Cola til veitingamarkaðarins í Norður-Ameríku, í tilkynningu fyrirtækjanna.
Samningurinn talinn hafa mikið táknrænt gildi
Greinendur sem Reuters ræddi við telja að bein fjárhagsleg áhrif á PepsiCo verði viðráðanleg. Ákvörðun KFC geti þó veikt stöðu PepsiCo á veitingamarkaðinum og haft áhrif á önnur langtímasamstarf fyrirtækisins.
Samkvæmt mati Bank of America námu árleg viðskipti KFC við PepsiCo um 500 milljónum Bandaríkjadala. Það samsvarar um 61 milljarði íslenskra króna miðað við gengi dagsins.
Samningar af þessari stærðargráðu snúast ekki aðeins um gosdrykki. Þeir geta einnig tekið til kælibúnaðar, viðhalds, markaðsstarfs, vörumerkinga og sérstakra drykkja sem þróaðir eru fyrir einstakar veitingakeðjur.
PepsiCo mun áfram eiga í samstarfi við önnur vörumerki Yum Brands og ýmsar alþjóðlegar veitingakeðjur. Samningurinn við KFC í Bandaríkjunum færist hins vegar yfir til helsta keppinautarins vorið 2027.
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði



