Vertu memm

Áhugavert

Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum

Birting:

þann

Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum

Útskriftarárgangurinn frá 1976 kom saman á ný eftir hálfa öld.

Föstudaginn 4. september kom saman hópur matreiðslumanna sem útskrifaðist úr Hótel- og veitingaskólanum árið 1976. Tilefnið var hálfrar aldar útskriftarafmæli hópsins.

Jóni B. Sveinssyni, fyrrverandi kennara hópsins, og Ólafi Erni Ólafssyni, sem var prófdómari við Hótel- og matvælaskólann um árabil, var einnig boðið til samverunnar.

Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum

Hópurinn við útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum árið 1976.

Dagurinn hófst á Kjarvalsstöðum þar sem hópurinn gæddi sér á dönsku smørrebrød að hætti Marentzu Poulsen.

Þaðan var haldið í Sjómannaskólann, þar sem verkleg kennsla matreiðslunemanna fór fram á sínum tíma.

Í húsnæðinu fer nú fram tölvu- og margmiðlunarkennsla Tækniskólans og fátt, ef nokkuð, minnir lengur á eldhúsið og veitingasalinn sem þar voru áður.

Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum

Jón B. Sveinsson, fyrrverandi kennari hópsins, rifjaði upp gamla tíma í Sjómannaskólanum.

Gömul Rafha-eldavél vakti athygli

Næst heimsótti hópurinn varðskipið Óðin, sem smíðað var árið 1959. Vildarvinir skipsins tóku á móti gestunum og leiddu þá um varðskipið.

Sérstaka athygli vakti að um borð er enn Rafha-eldavél af þeirri gerð sem var algeng þegar hópurinn var við nám.

Að heimsókninni lokinni var haldið í undirbúningseldhús veitingastaðarins Hafnarinnar, þar sem aðstaðan var skoðuð. Þar fengu gestir meðal annars að smakka milljónbuff úr nautalundum.

Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum

Hópurinn skoðaði aðstöðuna í undirbúningseldhúsi veitingastaðarins Hafnarinnar.

Deginum lauk síðan með glæsilegum kvöldverði á Höfninni hjá Brynjari, eiganda staðarins, en hann var í hópi matreiðslunemanna sem útskrifuðust árið 1976.

Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum

Brynjar og starfsfólk hans göldruðu fram glæsilegan þriggja rétta kvöldverð fyrir hópinn.

„Dagurinn verður okkur öllum ógleymanlegur. Eftir langan starfsferil var af mörgu að taka, rifja upp og ræða. Glens, gaman og góðar minningar einkenndu þessa einstöku samveru,“

segir Sigurður Einarsson matreiðslumeistari.

Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum

Frímann Sveinsson matreiðslumeistari, einn úr útskriftarhópnum og Listamaður Norðurþings 2026, tók upp gítarinn og lék fyrir félaga sína á Höfninni.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið