Bocuse d´Or
Við erum að stækka Bocuse d’Or teymið
Bocuse d’Or-kandídat Íslands, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, leitar nú að nýjum liðsmönnum í teymi sitt.
Við erum að stækka Bocuse d’Or teymið
Langar þig að taka þátt í einu mest krefjandi, skapandi og spennandi verkefni sem hægt er að takast á við í matreiðslu?
Ég er að stækka teymið mitt fyrir næsta kafla í Bocuse d’Or vegferðinni og leita að metnaðarfullu fólki sem vill koma með okkur alla leið.
Ég leita að fólki sem:
– hefur brennandi áhuga á matreiðslu og faginu
– er metnaðarfullt, lausnamiðað og tilbúið að leggja mikið á sig
– vinnur vel undir pressu og elskar smáatriðin
– vill læra, þróast og verða hluti af sterku teymi
– hefur gaman af því að hugsa stórt og ýta mörkunum
Þetta er ekki bara vinna í eldhúsi
Þetta er tækifæri til að taka þátt í þróun, æfingum, hugmyndavinnu og undirbúningi á hæsta stigi og verða hluti af vegferð þar sem markmiðið er að gera eitthvað sem við getum öll verið stolt af.
Reynsla er kostur, en rétta hugarfarið, metnaðurinn og ástríðan skipta mestu máli.
Heldurðu að þú eigir heima í teyminu eða þekkir þú einhvern sem ætti klárlega að sjá þetta?
Sendu mér skilaboð og segðu mér aðeins frá þér: [email protected]
Mynd: Bocusedor.com
Tengt efni: Hér má sjá fréttayfirlit um Bocuse d’Or.
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar3 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt2 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




