Markaðurinn
Landsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
Langar þig að læra að gera alvöru gæða pylsur frá grunni? Á þessu verklega námskeiði lærir þú allt ferlið, frá vali á kjöti og réttu fituhlutfalli yfir í fullkomna steikingu og eldun. Þú færð innsýn í fagleg vinnubrögð landsliðs kjötiðnaðar og lærir að búa til alvöru gæða pylsur sem þú getur auðveldlega gert sjálfur heima. Engin fyrri reynsla nauðsynleg, bara áhugi.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað matreiðslumönnum, matgæðingum, heimakokkum og öllum sem hafa áhuga á góðu hráefni og vandaðri matargerð.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu og færni til að útbúa pylsur frá grunni heima hjá sér.
Farið er yfir rétta meðhöndlun hráefnis.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
– Val á kjöti og rétt fituhlutfall
– Hlutverk salts og próteina í farsgerð
– Rétta meðhöndlun og hitastýringu hráefnis
– Kryddun og jafnvægi bragða
– Sprautun í garnir
– Eldun
– Hvernig laga má uppskriftir að eigin smekk
Áhersla er á verklega vinnu og að þátttakendur fari heim með þekkingu sem nýtist strax í eigin eldhúsi.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
– Sett saman eigin uppskrift
– Fullunnið gæða pylsur heima hjá sér
Aðrar upplýsingar:
Kennari á námskeiðinu er landsliðs kjötiðnaðarmaðurinn Hermann S Björgvinsson ásamt félögum sínum í kjötiðnaðarlandsliðinu. Hermann er þrefaldur sigurvegari í Grillpylsu ársins á Kótilettunni BBQ Festival.
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangar þig að reka eldhús með mikla möguleika?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanHeilum gámi af kampavíni stolið á leið til Íslands
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerskt íslenskt kínakál komið á markað
-
Frétt6 dagar síðanEinsi Kaldi og Vöruhúsið semja við Vestmannaeyjabæ
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanHelliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu
-
Markaðurinn2 klukkustundir síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli



