Starfsmannavelta
Reksturinn náði ekki nægri veltu
Kaffihúsið Te og kaffi á Suðurlandsbraut verður lokað um miðjan júlí þegar núverandi leigusamningur rennur út. Greint er frá ákvörðuninni á fréttavefnum Vísi.
Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi, segir í samtali við Vísi að reksturinn á Suðurlandsbraut hafi aldrei náð þeirri veltu sem þurfti til að standa undir starfseminni.
„Við höfum aldrei náð upp þeirri veltu þarna sem við hefðum þurft til að láta hlutina ganga, því miður,“
segir Guðmundur.
Tveir fastráðnir starfsmenn halda áfram störfum hjá fyrirtækinu og hlutastarfsfólk mun áfram starfa á milli kaffihúsa fyrirtækisins. Guðmundur segir jafnframt að engar frekari breytingar séu fyrirhugaðar og að hinir sjö staðirnir verði áfram reknir.
Hann tekur einnig fram að lokunin tengist ekki fyrirhuguðum skipulagsbreytingum á Suðurlandsbraut heldur hafi ákvörðunin legið fyrir um nokkurt skeið.
Te og kaffi var stofnað árið 1984 og rak fyrirtækið á sínum tíma allt að 14 kaffihús. Eftir lokunina á Suðurlandsbraut verða kaffihús fyrirtækisins sjö talsins.
Mynd: teogkaffi.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel17 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn7 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Markaðurinn18 klukkustundir síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Frétt7 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð



