Frétt
Matvælastofnun varar við Malwa tei vegna aðskotaefnis
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Malwa tei frá Tee Herbatjka zionkowa sem Mini market ehf. flytur inn vegna of hátt magn af aðskotaefninu perclorate (sem getur myndast við bruna eða þurrkun). Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigiseftirliti Reykjavíkur stöðva sölu og innkallað vöruna.
Tilkynningin barst til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvælk og fóður.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Vörumerki: Malwa
- Vöruheiti: Tee Herbatka ziołowa Morwa biała
- Geymsluþol: 31/07/2027
- Strikamerki: 5902781001984
- Nettómagn: 40 g
- Framleiðsluland: Pólland
- Innflytjandi: Mini market, Drafnarfell 14, 111 Reykjavík.
- Dreifing: Mini market, Drafnarfell 14, 111 Reykjavík.
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




