Markaðurinn
Íslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
Við leitum að öflugum hótelstjóra á Hótel Reykjavík Askja frá og með 1. ágúst 2026.
Hótel Reykjavík Askja (nú rekið sem Reykjavík Natura Hotel) er 220 herbergja, fjögurra stjörnu hótel staðsett í jaðri Öskjuhlíðarinnar, en Íslandshótel munu hefja rekstur þess þann 1. september næstkomandi. Á hótelinu eru 9 ráðstefnusalir, veitingastaður og heilsulind (spa).
Um er að ræða viðamikla stjórnunarstöðu með ábyrgð á fjölbreyttum rekstri og stórum hópi starfsmanna. Hótelstjóri skipuleggur og stýrir daglegum rekstri hótelsins og hefur yfirumsjón með gestamóttöku, bókunum, ráðstefnusölum, veitingastað, spa, þrifum, viðhaldi fasteignar ásamt mannauðsmálum.
Hótelið mun gangast undir viðamiklar endurbætur næstu 3 árin og mun hótelstjóri taka virkan þátt í undirbúningi og innleiðingu þeirra.
Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni. Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum: Samvinna – Fagmennska – Hugrekki – Umhyggja
Ábyrgðarsvið
- Fagleg stjórnun, leiðsögn, samræming og þróun starfsmanna
- Fjármál og rekstrargreiningar
- Þjónustu-, gæða- og öryggisstjórnun
- Verkefna- og ferlastýring
- Rekstur og viðhald fasteignar
Hæfniskröfur
- Árangursrík reynsla sem stjórnandi í hótel- og/eða veitingarekstri
- Menntun á sviði hótelstjórnunar eða iðnnám í fram- eða matreiðslu er kostur
- Afbragðs færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
- Fjármálalæsi og greiningarhæfni
- Góð kerfis- og tölvukunnátta, þekking á Opera Cloud, Business Central og H3 er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Umsóknarferli
Umsækjendur eru beðnir að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.
Umsóknarfrestur er til og með 17. júní 2026.
Óskir um nánari upplýsingar sendist á Hjört Valgeirsson, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs: [email protected]
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað.
Í gegnum tvö öflug vörumerki, bjóða Íslandshótel gæða hótel hringinn í kringum landið í nálægð við stórbrotið landslag og einstakar náttúruperlur. Innan Fosshótel og Hótel Reykjavík vörumerkja eru 17 hótel með rétt tæplega 2.000 herbergi. Fosshótel eru staðsett hringinn í kringum landið og Hótel Reykjavík með 4 stjörnu hótel í Reykjavík fyrir ferðamenn og ráðstefnugesti sem vilja njóta glæsilegar aðstöðu og framúrskarandi þjónustu.
Fullt starf
Umsóknarfrestur: 17.06.2026
-
Keppni5 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn5 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt6 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn2 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Markaðurinn2 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni



