Viðtöl, örfréttir & frumraun
Nýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík

Nýir leigjendur taka við Pakkhúsinu í Ólafsvík þar sem saga, menning og kaffiveitingar verða í forgrunni.
Nýr kafli er að hefjast í rekstri Pakkhússins í Ólafsvík eftir að Snæfellsbær undirritaði nýverið leigusamning við Yevheniia Korchyha um rekstur hússins.
Yevheniia hyggst opna starfsemi undir nafninu Pakkhúsið Saga & Kaffi, þar sem lögð verður áhersla á að sameina menningu, sögu og léttar veitingar. Samhliða rekstrinum mun hún áfram taka á móti gestum á safnið á efri hæðum hússins, en á jarðhæðinni verður saga samfélagsins gerð skil ásamt því að boðið verður upp á kaffiveitingar og minjagripi.

Pakkhúsið í Ólafsvík var reist árið 1844 og er eitt fárra varðveittra verslunarhúsa frá 19. öld á Íslandi. Húsið var friðað árið 1970.
Pakkhúsið hefur um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í menningarlífi Ólafsvíkur og á sér langa og merkilega sögu. Samhliða nýjum rekstri hafa Hollvinasamtök Pakkhússins unnið að uppsetningu sýningar um verslunarsögu bæjarins sem verður aðgengileg gestum á opnunartíma staðarins, samkvæmt upplýsingum á vef Snæfellsbæjar.
Með þessu er stefnt að því að Pakkhúsið verði á ný lifandi samkomustaður allan ársins hring. Íbúar og gestir eru hvattir til að líta við, kynna sér sögu Ólafsvíkur og njóta þess sem nýr rekstraraðili hefur upp á að bjóða í þessu sögufræga húsi.
Myndir: snb.is
-
Frétt6 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni6 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanÞráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
-
Markaðurinn6 dagar síðanNóg um að vera hjá ÓJ&K-ÍSAM í Korputorginu
-
Markaðurinn5 dagar síðanMatreiðslumaður óskast á Hótel Reykjavík Sögu í hjarta borgarinnar
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes hefur sölu á úrvals Iberico grísakjöti frá César Nieto
-
Frétt5 dagar síðanÍslandshótel taka við rekstri tveggja stórra hótela
-
Frétt5 dagar síðanFisk Kompaní festir kaup á Betri vörum



