Viðtöl, örfréttir & frumraun
Mijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina

Ný hugmynd í götumat lítur dagsins ljós um helgina þegar Mijita kynnir „La Gran Colombia“ við Kolaportið 11. og 12. apríl.
Mynd: Mijita
Mijita færir götumatinn í nýja átt með „La Gran Colombia“ sem verður kynnt við Kolaportið dagana 11. og 12. apríl. Með verkefninu er markmiðið að víkka út matseðilinn og leggja áherslu á sameiginlega matararfleifð Kólumbíu og Venesúela.
Mijita hefur á undanförnum árum skapað sér sérstöðu á íslenskum götumatarmarkaði og er meðal annars þekktur fyrir að hafa kynnt rétti á borð við arepas og empanadas til landsins. Nú er stigið næsta skref með nýrri nálgun þar sem hefðir tveggja landa eru sameinaðar.
Nafnið La Gran Colombia vísar til sögulegrar sameiningar ríkja í Suður-Ameríku undir forystu Simón Bolívar, þar sem Kólumbía og Venesúela voru eitt ríki um tíma. Hugmyndin á að endurspegla sameiginlegar rætur í menningu og matargerð.
Á matseðlinum verður að finna fjölbreytt úrval hefðbundinna, glútenlausra rétta sem byggja á bragðheimi beggja landa. Þar blandast vinsælir kólumbískir réttir Mijita við klassíska venesúelanska götubita. Allir réttir eru handgerðir hér á landi og unnir úr íslensku hráefni.
Samkvæmt tilkynningu er verkefnið liður í áframhaldandi áherslu Mijita á að tengja saman menningu og matargerð Suður-Ameríku og Íslands. Opnunin er jafnframt unnin í samstarfi við Kolaportið og Götubitann og markar upphaf götumatartímabilsins 2026 í Reykjavík.
La Gran Colombia verður opin laugardaginn 11. apríl og sunnudaginn 12. apríl frá klukkan 11.30 til 20.00 fyrir utan Kolaportið.
-
Keppni4 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Markaðurinn4 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Keppni19 klukkustundir síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski



