Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ísak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
Páskadagurinn var haldinn hátíðlegur um borð í Björgúlfi EA 312 með glæsilegum hátíðarmat, þar sem kokkurinn Ísak Oddgeirsson lagði metnað í að skapa páskalega stemningu þrátt fyrir að skipið væri staðsett á vertíðarslóðum suðvestur af Reykjanesi.
Sjómenn eru oft fjarri sínum nánustu yfir hátíðir og því skiptir miklu máli að gera vel við sig þegar tilefni gefst. Ísak segir að undirbúningurinn hafi heppnast afar vel og að stemningin um borð hafi verið í takt við daginn.
„Þetta tókst ljómandi, strákarnir fengu andarbringur með hasselback og balsamic-gljáa og í eftirrétt var skyrfrauð með hvítu súkkulaði og bláberjum.
Þeir áttu svo sannarlega skilið að fá hátíðarmat á þessum degi, strákarnir. Og svo fengu allir páskaegg, þannig að hér ríkir hátíðarstemning,“
segir Ísak.
Samkvæmt honum var ekki aðeins vel gert við bragðlaukana heldur var einnig haldið í hefðirnar, en flaggað var um borð í tilefni dagsins eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Þrátt fyrir að vera langt frá landi tókst áhöfninni þannig að skapa hlýlega og hátíðlega stemningu á miðunum, þar sem góður matur og samvera skiptu sköpum.
Myndir: Facebook / Samherji
-
Áhugavert4 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Keppni3 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Frétt3 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Markaðurinn6 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið
-
Keppni2 dagar síðanParís 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra
-
Keppni2 dagar síðanMarína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni










