Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Nemendur MA hanna pizzur sem styðja gott málefni

Birting:

þann

Nemendur MA hanna pizzur sem styðja gott málefni

Mynd: Kaffid.is

Nemendur við Menntaskólann á Akureyri hafa tekið þátt í skemmtilegu og samfélagslegu verkefni í samstarfi við Sprett-Inn, þar sem afraksturinn er nýjar pizzur á matseðli, sem um leið láta gott af sér leiða.

Verkefnið, sem ber yfirskriftina „Sneið fyrir samfélagið“, var unnið í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Nemendur komu að þróun pizzanna frá grunni og urðu til þrjár nýjar pizzur sem nú eru í boði.

Það sem gerir verkefnið sérstaklega áhugavert er að af hverri seldri pizzu renna 600 krónur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Fram kemur í umfjöllun Kaffid.is að pizzurnar, sem bera nöfnin Businn, Kvos-inn og Skólameistarinn, endurspegli bæði sköpunargleði nemenda og tengingu við skóla- og bæjarlíf á Akureyri.

Verkefnið stendur yfir frá 18. mars til 15. apríl, og er markmiðið að sameina sköpun, samfélagslega ábyrgð og þátttöku ungs fólks.

Nánari umfjöllun má lesa á Kaffid.is.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið