Food & fun
Myndaveisla: Svavar Helgi Ernuson sigraði í Reyka kokteilkeppninni á Food & Fun
Reyka kokteilkeppnin fór fram samhliða Food & Fun hátíðinni í Reykjavík. Eftir svokallað „walk around“ mat dómara frá Barþjónaklúbbi Íslands voru fimm keppendur valdir til að halda áfram í úrslit, sem fóru fram á fimmtudagskvöld í Petersen svítunni.
Til úrslita kepptu Maria Calamari frá La Primavera í Marshallhúsinu, Svavar Helgi Ernuson frá Fjallkonunni, Steinþór Helgi Arnsteinsson frá Skreið, Dagur Jakobsson frá Apóteki og Arnór Páll Róbertsson Eydal frá Sumac.
Að lokum stóð Svavar Helgi Ernuson uppi sem sigurvegari keppninnar. Dagur Jakobsson hlaut einnig sérstök verðlaun fyrir kokteilinn með bestu tenginguna við matseðil staðar síns í tengslum við Food & Fun.
Í þremur efstu sætunum enduðu Svavar Helgi Ernuson, Steinþór Helgi Arnsteinsson og Dagur Jakobsson.
Úrslitin voru tilkynnt á lokapartýi Food & Fun sem haldið var á nýja staðnum Gamla Reykjavík í Austurstræti við mikinn fögnuð gesta.
Ljósmyndir frá keppninni Food & Fun tók Valgarður Gíslason.
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni7 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð













































