Viðtöl, örfréttir & frumraun
Tímamót hjá Mat og drykk eftir áratug á Grandagarði
Tímamót eru fram undan hjá veitingastaðnum Mat og drykk sem hefur verið rekinn í Allianz-húsinu á Grandagarði í áratug. Nú stendur yfir flutningur í nýtt húsnæði að Mýrargötu 31, þar sem bakaríið Brikk var síðast til húsa. Ekki er langt að fara því nýi staðurinn er rétt handan við hornið.
Í samtali við Morgunblaðið segir Helga Haraldsdóttir, yfirkokkur staðarins, að með flutningnum sé stefnt að því að lyfta upplifun gesta enn frekar.
„Nú ætlum við að taka þetta lengra og hækka þjónustustigið. Þetta húsnæði gerir okkur kleift að bjóða upp á betri upplifun fyrir gesti og gera betur við þá,“
segir Helga í viðtali við mbl.is.
Framkvæmdir á nýja staðnum hófust um miðjan desember og hafa gengið vel að sögn Helgu. Nú sé farið að styttast í endapunktinn, þó enn sé beðið eftir leyfi frá heilbrigðiseftirlitinu. Um fimmtungur verksins sé eftir, þessi síðustu smáatriði sem þurfi að vera í fullkomnu lagi áður en dyrnar verða opnaðar á nýjum stað.
„Þess vegna verður maður að flýta sér hægt,“
segir Helga í samtali við Morgunblaðið og undirstrikar að metnaður sé lagður í að allt verði vandað til verka.
Með flutningnum markar Mat og drykk nýjan kafla í rekstrinum. Eftir áratug á Grandagarði er nú horft til þess að efla bæði aðstöðu og þjónustu, með það að markmiði að gera enn betur við gesti sína á nýjum stað við Mýrargötu.
Mynd: veitingageirinn.is / Smári
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn3 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn2 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt19 klukkustundir síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Keppni1 dagur síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins




