Markaðurinn
Ást við fyrsta bita: Wolt fagnar alþjóðlega kebab deginum
Takið daginn frá og gleymið salatinu í einn dag vegna þess að 11. júlí er alþjóðlegi kebab dagurinn. Wolt skrúfar því upp hitann, að sjálfsögðu með auka hvítlaukssósu til hliðar.
Á þessum frábæra degi fögnum við réttinum sem hefur verið til staðar þegar við höfum þurft mest á honum að halda:
- Eftir langar nætur á Laugaveginum
- Á milli funda í Borgartúni
- Eða einfaldlega þegar grillað kjöt, dúnmjúkt brauð og bragðmikil sósa er það eina sem þarf
Kebab er fjórði vinsælasti rétturinn sem sendur er í gegnum Wolt á Íslandi, en í fyrra fengu íslensk heimili fleiri en 40.000 kebab máltíðir sendar til sín. Kebab staðurinn Arabian Taste í Reykjavík er lang vinsælastur á Íslandi, enda þekktur fyrir ósvikið bragð og vel útilátna skammta. Hann hefur tvö ár í röð unnið til Wolt verðlaunanna fyrir besta kebab á Íslandi.
Meðal annarra vinsælla kebab veitingastaða eru Biryani, Viking Kebab og Sara Kebab.
„Kebab er meira en matur, það er lífsstíll. Við erum hér og reiðubúin til að senda þennan lífsstíl beint upp að dyrum á undir 30 mínútum, og það vonandi án þess að spilla dropa af sósu,“
segir Jóhann Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi.
Wolt er með eitthvað fyrir alla kebab aðdáendur, hvort sem þú fílar klassískan döner, elskar dürüm, langar í grænmetis kebab með grilluðum halloumi osti eða ert forvitinn um kebab borgara.
Algjörlega ónauðsynlegar (en safaríkar) kebab staðreyndir til að sýna vinum þínum hvað þú ert klár:
- Döner kebabinn var fyrst fundinn upp í Berlín á áttunda áratugnum. Takk Þýskaland!
- “Kebab” er dregið af arabíska orðinu yfir «grillað kjöt» – sem við vitum öll að stendur fyrir eftir-partý sælu.
- Yfir 100 kebab réttir eru fáanlegir í gegnum Wolt á Íslandi. Við gáðum – og pöntuðum svo aftur. Í nafni vísindanna.
11. júlí. Fyrir bragðið, fyrir fílinginn, fyrir kebabinn. Prófaðu Wolt – það gæti verið ást við fyrsta bita.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af Lucy Pesik fyrir Wolt.
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð





